Balogun viðurkennir að inngrip Trumps hafi haft truflandi áhrif Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. júlí 2026 12:30 Folarin Balogun á ferðinni í leiknum við Belgíu sem enginn bjóst við að hann myndi spila. getty/Dale MacMillan Folarin Balogun, einn umtalaðasti maður heimsmeistaramótsins í fótbolta, segir að allt fjaðrafokið í kringum leikbann hans sem var aflétt hafi haft truflandi áhrif á undirbúning bandaríska landsliðsins fyrir leikinn gegn Belgíu í sextán liða úrslitum.
Balogun var rekinn af velli í 4-1 sigri Bandaríkjanna á Bosníu í 32-liða úrslitum HM. Öllum að óvörum var bann hans gert skilorðsbundið og hann gat því spilað næsta leik bandaríska liðsins, gegn Belgíu. Donald Trump Bandaríkjaforseti kvaðst hafa hringt í Gianni Infantino, forseta FIFA, vegna rauða spjaldsins og beitt sér fyrir því að banninu yrði aflétt. Infantino þvertók fyrir að inngrip Trumps hefði haft einhver áhrif á ákvörðun óháðrar aganefndar FIFA. Samkvæmt The Times kom þó aðeins formaður nefndarinnar, Mohamed Al Kamali, að ákvörðuninni, þrátt fyrir að átján manns sitji í nefndinni. Í viðtali við CBS kvaðst Balogun hafa verið ánægður með að geta spilað leikinn gegn Belgíu. Hann viðurkenndi þó að málið hefði haft áhrif á bandaríska liðið í aðdraganda leiksins mikilvæga. Bandaríkin töpuðu honum, 4-1. „Þegar ég fór að hugsa málið vissi ég að þetta yrði umdeilt og skynjaði smá taugatitring hjá samherjum mínum því þetta var svo einstakt. En þegar nær dró leiknum reyndi ég bara að einbeita mér eins vel og ég gat. En það var erfitt, þú veist, mikið utanaðkomandi áreiti sem er erfitt að forðast,“ sagði Balogun. „Þetta var staða sem var óheppileg en það veitti mér sjálfstraust. En eins og þú sagðir var þetta ruglingslegt því liðið var að æfa án þess að ég væri í því. Ég var nánast í aukahlutverki að reyna að halda baráttuandanum uppi. Svo held ég að það hafi verið degi eða tveimur fyrir leik að mér var sagt að ég væri kominn aftur í liðið. Við komumst að því í liðsrútunni.“ Balogun vill þó ekki skrifa tapið og vonbrigðaframmistöðuna gegn Belgum á allt havaríið vegna bannsins sem var aflétt. „Við erum allir atvinnumenn þannig að ég held að það hafi ekki verið of erfitt að aðskilja þetta þegar við komumst yfir fyrstu tilkynninguna að ég yrði aftur í liðinu,“ sagði Balogun og ítrekaði að Bandaríkjamenn hafi verið fullir einbeitingar fyrir leikinn gegn Belgum sem reyndust of sterkur andstæðingur. Balogun var markahæsti leikmaður Bandaríkjanna á HM með þrjú mörk. Hann hefur alls skorað tólf mörk fyrir bandaríska landsliðið, í 31 leik.
HM 2026 í fótbolta FIFA Donald Trump Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira