Segir að þarna hafi Haaland skorað sjálfsmark Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2026 22:32 Erling Braut Haaland hitti norska kónginn í konungshöllinni en stakk síðan af á tískusýningu á Ítalíu og fagnaði ekki með norsku þjóðinni á hallartorginu. Getty/Buda Mendes/ Stærsta stjarna norska fótboltalandsliðsins sást ekki þegar norska fólkið fagnaði HM-hetjunum á Hallartorginu í gærkvöldi en það eru ekki allir sem skilja forgangsröðunina hjá framherjanum.
Erling Braut Haaland og Sander Berge stungu báðir af og slepptu því að hitta gríðarlegan mannfjölda í Ósló. „Haaland skoraði sjö mörk á HM. Þetta var sjálfsmark,“ sagði Bengt Eriksen, fótboltasérfræðingur norska ríkissjónvarpsins. Haaland og Berge voru vissulega með þegar allur HM-hópurinn heilsaði upp á Harald konung á mánudagskvöld en þegar restin af hópnum fór út til að fagna með fólkinu hurfu Haaland og Berge út um bakdyrnar. Eriksen var ekki hrifinn. Uppsláttur norska ríkissjónvarpsins.NRK „Hér hefðu þeir átt að vera með sem ein heild. Einn fyrir alla, allir fyrir einn,“ segir Eriksen. Tvíeykið fór þess í stað til Ítalíu í einkaflugvél. La Sicilia myndaði Haaland við komuna. Nokkrir ítalskir miðlar, þar á meðal Rai og La Repubblica, skrifuðu um að Haaland hafi farið til Sikileyjar á tískusýningu Dolce & Gabbana. Tískusýning Dolce & Gabbana NRK hefur reynt að fá það staðfest að Haaland muni taka þátt í tískusýningu Dolce & Gabbana en hefur ekki fengið svar. Sýningin á að vera í Teatro Antico di Taormina á Sikiley. „Domenico Dolce og Stefano Gabbana virðast skyndilega mikilvægari en níutíu þúsund aðdáendur í Noregi. Það er ekki sú síðasta ímynd af HM-ævintýrinu sem maður hefði helst óskað sér,“ sagði Jan Petter Saltvedt, íþróttafréttaskýrandi NRK. Honum finnst, líkt og Eriksen, miður að Haaland og Berge hafi ekki „lagt sitt af mörkum til að setja punktinn yfir i-ið“ ásamt þjóðinni. Klukkutíma frá fullkomnu móti „Haaland og Berge eru aðeins klukkutíma frá því að eiga nánast fullkomið mót í augum og hjörtum norsku þjóðarinnar,“ sagði Saltvedt. Eriksen bendir á að tvíeykið hefði varla verið að flýta sér til Ítalíu ef Noregur hefði ekki dottið út af HM og gefur í skyn að þetta hefði átt að leysa á annan hátt. „Þetta var jú ekki Jensen-fjölskyldan sem þurfti að kaupa sér fimm nýja miða til Mallorca. Þetta var allt önnur staða. Og þá gefur maður sér tíma til að klára þetta alveg áður en maður óskar góðs frís,“ sagði Eriksen. Jan Petter Saltvedt er samt ánægður með að þeir hafi gefið sér tíma til að heimsækja konunginn. Styðja ákvörðun Haaland og Berge Landsliðsfyrirliðinn Martin Ødegaard og landsliðsþjálfarinn Ståle Solbakken styðja ákvörðun Haaland og Berge og halda því fram að planið hafi verið að þeir næðu öllu. „Það voru miklar tafir og vesen á heimleiðinni í dag. Það voru einhverjir sem höfðu bókað flug og svoleiðis. Þeir hefðu viljað vera hér, en við áttum að skila kveðju frá þeim og þakka fyrir allan stuðninginn,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Martin Ødegaard við NRK á mánudagskvöld.
Noregur HM 2026 í fótbolta Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sjá meira