Kæra forseta FIFA til Alþjóðaólympíunefndarinnar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. júlí 2026 20:30 Gianni Infantino forseti FIFA sýnir hér Donald Trump Bandaríkjaforseta heimsbikarinn. Getty/Chip Somodevilla Mannréttindasamtök hafa kært Gianni Infantino, forseta FIFA, til Alþjóðaólympíunefndarinnar vegna tengsla hans við Donald Trump Bandaríkjaforseta á heimsmeistaramótinu í fótbolta.
Infantino er sakaður um að hafa brotið reglur um pólitískt hlutleysi í samskiptum sínum við Trump. Mannréttindasamtökin FairSquare, sem ekki eru rekin í hagnaðarskyni, segja að Infantino, sem varð meðlimur Alþjóðaólympíunefndarinnar árið 2020, hafi ítrekað brotið Ólympíusáttmálann og siðareglur nefndarinnar, nú síðast í meðferð sinni á máli Folarin Balogun. Aganefnd FIFA frestaði eins leiks banni bandaríska framherjans, sem gerði honum kleift að spila í 16-liða úrslitum HM gegn Belgíu. Þetta gerðist í kjölfar símtals frá Trump til Infantino, en Infantino heldur því fram að nefndir FIFA séu algjörlega sjálfstæðar. Tugir evrópskra þingmanna eru líka sagðir vera að safna stuðningi til að hefja rannsókn á forseta FIFA á Evrópuþinginu. FIFA hefur ekki gefið neina skýringu á því hvers vegna banninu var frestað. FairSqaure - a group which promotes accountability in sport - has filed a complaint against FIFA president Gianni Infantino with the International Olympic Committee.They claim Infantino has repeatedly breached IOC rules on political neutrality.FIFA have declined to comment. pic.twitter.com/ZsuISe4igK— Anthony Joseph (@AnthonyRJoseph) July 14, 2026 Í kæru FairSquare eru tilgreind fimm skýr brot á reglum Alþjóðaólympíunefndarinnar um pólitískt hlutleysi, ásamt „prima facie“ sönnunargögnum um tvö önnur alvarleg brot – þar á meðal meðferðina á máli Balogun. „Gianni Infantino hefur ítrekað brotið reglur Alþjóðaólympíunefndarinnar um pólitískt hlutleysi með því að veita Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, pólitískan stuðning sinn,“ sagði FairSquare í yfirlýsingu. „Sönnunargögnin benda til þess að hr. Infantino hafi framið fimm skýr brot á reglum Alþjóðaólympíunefndarinnar um pólitískt hlutleysi með yfirlýsingum eða öðrum skýrum stuðningsyfirlýsingum við Bandaríkjaforseta. NEW: Human rights group files complaint to International Olympic Committee alleging FIFA + Infantino breached political neutrality rules over Balogun red card decision.(Infantino is an IOC member).https://t.co/gIlXQ0fi0K— Martyn Ziegler (@martynziegler) July 14, 2026 Þá er vísað til tveggja annarra tiltekinna mála sem mannréttindasamtökin biðja IOC um að rannsaka. Annað þeirra er Balogun-málið frá HM, hitt snýst um stuðning sem Infantino er sagður hafa veitt stuðningsmannasvæði á HM sem talið er hafa tengsl við Trump. „Við höfum einnig lagt fram sönnunargögn um tvö önnur alvarleg brot sem við óskum eftir að Alþjóðaólympíunefndin rannsaki. Það fyrra varðar mögulegt undanlát frá pólitískum þrýstingi frá Trump forseta til að sniðganga agareglur FIFA á vellinum á HM karla 2026.“ „Það síðara varðar kynningu hr. Infantino á stuðningsmannasíðu FIFA fyrir HM karla 2026, sem virðist hafa verið hluti af gagnaöflunarherferð sem rekin var af aðilum tengdum Trump forseta.“
HM 2026 í fótbolta FIFA Donald Trump Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Liverpool áfram eftir vítakeppni Enski boltinn Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Enski boltinn Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM Handbolti Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Íslenski boltinn Draumurinn að þjálfa Blika Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið Knattspyrnuforkólfur segir af sér til að mótmæla stuðningi við Infantino „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Mikael Egill fór meiddur af velli í sigri á Juventus Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Heimir farinn frá Fylki Daníel Tristan innsiglaði sigurinn með langþráðu marki Enn taplausar þrátt fyrir martraðarbyrjun Töpuðu fyrir toppliðinu á tveimur sjálfsmörkum Viðar Ari skaut Frey og lærisveina hans út úr bikarnum Diljá Ýr fagnaði sigri á Blikabönunum og Hammarby vann líka Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val Real Madrid biður alla Kínverja afsökunar Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Fresta leikjum á Spáni vegna lestarslyssins „Neyði menn ekki til að vera hérna“ „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Omar Sowe kominn í KR-treyjuna Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Börsungar sektaðir fyrir samskipti við Alvarez Sjá meira