Breyttu nafninu á flugvél norska liðsins í „Ro Ro Ro Ro Airlines“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júlí 2026 16:45 Norðmenn bíða spenntir eftir því að Erling Haaland og liðsfélagar hans komi heim frá Bandaríkjunum þar sem þeir slógu í gegn á HM. Getty/Elsa Karlalandslið Noregs í fótbolta er á leiðinni heim til Noregs eftir HM-æintýri sitt og Norðmenn fylgjast spenntir með því ætlunin er að hylla hetjunar á eftirminnilegan máta í Osló í kvöld.
Norska landsliðið leigði auðvitað flugvél fyrir ferðalagið og menn róa því ekki yfir Atlantshafið, eins og einhverjir kynnu kannski að halda. Samt sem áður hefur fararmátinn fengið skýra vísun í einkennishróp norskra fótboltaáhugamanna á leikvöngum. Á FlightRadar var flugvélin nefnilega skráð sem „Ro Ro Ro Ro Airlines“ en flugvélin flytur norsku hetjurnar heim á norska grund í flugi NCR720. Það er auðvitað bein vísun í Víkingaróður stuðningsmanna. Ro 🚣 Ro 🚣 Ro 🚣 Ro 🚣 Airlines 🇳🇴 pic.twitter.com/SmGC58bl1i— Flightradar24 (@flightradar24) July 13, 2026 TV 2 fær einnig staðfest frá aðgerðastjórn norska hersins að tvær F-35 orrustuþotur muni fylgja flugvél landsliðsins á leiðinni inn yfir Osló. Flugvélarnar eru venjulega í viðbragðsstöðu fyrir NATO. Í fyrstu var óljóst hvort það væri National Airlines, FlightRadar eða NFF sem stæði á bak við nýja nafnið. FlightRadar hefur svarað fyrirspurn TV 2. „Við gerðum þessa breytingu til að fagna frábærum árangri liðsins á mótinu og þeim sterka anda og viljastyrk sem hefur unnið sér sess í hjörtum stuðningsmanna í Noregi og um allan heim,“ svarar Ian Petchenik, samskiptastjóri FlightRadar. Team Norway 🇳🇴 ⚽️ is Ro’ing home with their heads held high aboard Ro Ro Ro Ro Airlines, aka Orlando’s own @GoNationalAir.✈️ It’s the most tracked flight on @flightradar24:https://t.co/JpXP6DyF4fHeroes welcome awaits in Oslo. Norway’s first World Cup play since 1998. pic.twitter.com/fTb3B7ikxE— Greg Angel (@TheGregAngel) July 13, 2026 Alls varð tveggja og hálfrar klukkustundar seinkun á flugtaki í Bandaríkjunum. Þar af leiðandi urðu Norðmenn að seinka áheyrnarfundinum hjá Haraldi konungi. Eftir áheyrnarfundinn í höllinni mun allt liðið og krónprinsinn fara út á Hallartorgið til að róa. Liðið og stuðningsliðið mun síðan fara í opna rútuferð um miðborg Óslóar frá höllinni. Á leiðinni er ætlunin að stoppa til að róa með fólkinu – bæði á Háskólatorginu og Ráðhústorginu. Það verður því nóg af víkingaróðri í kvöld og allt í beinni á norska ríkissjónvarpinu sem er aðgengilegt á sjónvarpsstöðvum Sýnar. „Við hlökkum til að þakka konungsfjölskyldunni fyrir stuðninginn en ekki síst allri þjóðinni sem hefur verið með okkur í þessari ævintýralegu ferð,“ skrifar norska knattspyrnusambandið. Það hefur verið mikið um gleði og samkomur í kringum leiki norska landsliðsins á HM en það má búast við því að þessi gæti slegið þeim öllum við.
HM 2026 í fótbolta Noregur Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti Fékk drauminn uppfylltan eftir MND greiningu Sport „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Fleiri fréttir Sjáðu markaveislu hjá bæði Manchester United og Bayern München í gær Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sjá meira