Tuttugu og þriggja enn saknað eftir mannskæða gróðurelda Áróra L Davíðsdóttir skrifar 11. júlí 2026 14:56 Hægari vindur og meiri raki í lofti gera slökkviliði betur kleift að ráða við slökkvistarf í dag. Getty Hundruð slökkviliðsmanna berjast enn við að ráða niðurlögum einna mannskæðustu gróðurelda í sögu Spánar. Eldarnir kviknuðu á fimmtudaginn í Almería-héraði á suðausturhluta landsins. Minnst tólf eru látnir og tuttugu og þriggja er enn saknað.
Sterkir vindar og mikill þurrkur urðu til þess að eldur breiddist hratt út á fimmtudaginn en á svæðinu hefur einnig geisað mikil hitabylgja. Eldurinn hafi þegar sviðið ræktar- og skóglendi á um sextíu og sex ferkílómetra svæði, sem er, að sögn AP, á við stærð Manhattan-hverfis New York-borgar. Hagstæðari veðurskilyrði geri slökkviliði hins vegar betur kleift að ráða við slökkvistarf í dag. Allt bendi til þess að eldurinn hafi kviknað eftir að rafmagnsstólpi féll til jarðar en upptökin séu þó enn til rannsóknar. Yfirvöld á Los Gallardos-svæðinu í Almería hafa varað við því að tala látinna gæti hækkað. Tuttugu og þriggja sé enn saknað og þúsundir hafi neyðst til að flýja heimili sín. Flestir þeirra látnu eru taldir vera erlendir ríkisborgarar sem ekki hafi farið eftir fyrirmælum yfirvalda um að halda sig innandyra. Breska ríkisútvarpið segir fjóra Breta meðal þeirra tólf látnu vegna eldanna, en þau hafi látist í bíl í kringum þorpið Bedar að því er virðist við að reyna að flýja eldana. Loftslagsbreytingar valdi hækkandi hitastigi um heim allan en Evrópa hlýni tvöfalt hraðar en meðaltalið á heimsvísu, að sögn Copernicus-loftslagsþjónustunnar. Hátt hitastig valdi tíðari hitabylgjum á sumrin, álagi á vatnsbirgðir Evrópu og öflugum gróðureldum.
Spánn Gróðureldar Náttúruhamfarir Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða miðjuna saman Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira