Minnir á kafla úr bók Franz Kafka Sigurður Páll Jónsson skrifar 11. júlí 2026 11:30 Að öskra uppí vindinn er góð útrás en lægir ekki norðanáttina. Náttúrulögmál veðra og vinda, strauma hafsins og sigling milli skers og báru er sjófarendum eilíft verkefni. Af auðmýkt og æðruleysi verðum við sjómenn að tileinka okkur þessi lögmál með góða skapið í farteskinu, það hefur reynslan kennt okkur. Mínu góða skapi var kippt úr sambandi í síðustu viku, en ekki af náttúruöflunum, því fyrir þeim ber ég virðinu. Ég er trillukarl og er nú í sumar á strandveiðum og nýt þess að vera út á sjó í góðu veðri og helst í ágætu fiskeríi. Í vor þegar minn ágæti skipaskoðunarmaður var að skoða bát og búnað, benti hann mér á að ein athugasemd væri frá samgöngustofu um að ,,öryggislit” vantaði á bátinn og ég hefði frest til 12. júlí til að kippa því í lag. Þá mundi ég eftir símhringingu sem ég fékk síðla vetrar frá eftirlitsmanni frá samgöngustofu sem hafði gert skyndi skoðun á bátnum án minnar vitundar. Hann sagði að ég mundi fá tölvupóst um að öryggislitinn vantaði. Aldrei kom póstur en samt kom þessi athugasemd í vor. Allt í góðu og fjárfest var í viðurkenndum skærrauðum límborða sem límdur var á bátinn svo hann sæist betur út á hafinu bláa. Ég sendi myndir af bátnum á minn skoðunarmann sem kom þeim áfram inná samgöngustofu í síðustu viku. Á fimmtudag hringdi hann í mig og sagðist engin viðbrögð fá frá samgöngustofu. Þeir sem gætu tekið þessa athugasem út væru í sumarfríi! Allann fimmtudaginn og föstudaginn var leitaði allra leiða til að ná sambandi en fengum þau svör að þeir sem væru í ,,sumarfíi” væru þeir einu sem ,,MÆTTU” afgreiða málið. Þetta þýðir að báturinn missir hafærniskírteynið á morgun 12. júlí og við komumst ekki á sjó eftir helgi. Ekki þýðir að öskra uppí norðanáttina því hann blæs að vestan. Ég tek því út reiði mín á lyklaborðinu og sendi þessa grein á visir.is Ég spyr, er engin sem leysir af þegar menn fara í sumafrí? Þarf í að bíða eftir að úr leysist þegar sumarfríi þessara mann líkur? Hver ber ábyrgð á svona forkastanlegum vinnubrögðum? Að öðru leiti er ég góður. Höfundur er trillukarl og fyrrverandi þingmaður Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjávarútvegur Sigurður Páll Jónsson Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Að öskra uppí vindinn er góð útrás en lægir ekki norðanáttina. Náttúrulögmál veðra og vinda, strauma hafsins og sigling milli skers og báru er sjófarendum eilíft verkefni. Af auðmýkt og æðruleysi verðum við sjómenn að tileinka okkur þessi lögmál með góða skapið í farteskinu, það hefur reynslan kennt okkur. Mínu góða skapi var kippt úr sambandi í síðustu viku, en ekki af náttúruöflunum, því fyrir þeim ber ég virðinu. Ég er trillukarl og er nú í sumar á strandveiðum og nýt þess að vera út á sjó í góðu veðri og helst í ágætu fiskeríi. Í vor þegar minn ágæti skipaskoðunarmaður var að skoða bát og búnað, benti hann mér á að ein athugasemd væri frá samgöngustofu um að ,,öryggislit” vantaði á bátinn og ég hefði frest til 12. júlí til að kippa því í lag. Þá mundi ég eftir símhringingu sem ég fékk síðla vetrar frá eftirlitsmanni frá samgöngustofu sem hafði gert skyndi skoðun á bátnum án minnar vitundar. Hann sagði að ég mundi fá tölvupóst um að öryggislitinn vantaði. Aldrei kom póstur en samt kom þessi athugasemd í vor. Allt í góðu og fjárfest var í viðurkenndum skærrauðum límborða sem límdur var á bátinn svo hann sæist betur út á hafinu bláa. Ég sendi myndir af bátnum á minn skoðunarmann sem kom þeim áfram inná samgöngustofu í síðustu viku. Á fimmtudag hringdi hann í mig og sagðist engin viðbrögð fá frá samgöngustofu. Þeir sem gætu tekið þessa athugasem út væru í sumarfríi! Allann fimmtudaginn og föstudaginn var leitaði allra leiða til að ná sambandi en fengum þau svör að þeir sem væru í ,,sumarfíi” væru þeir einu sem ,,MÆTTU” afgreiða málið. Þetta þýðir að báturinn missir hafærniskírteynið á morgun 12. júlí og við komumst ekki á sjó eftir helgi. Ekki þýðir að öskra uppí norðanáttina því hann blæs að vestan. Ég tek því út reiði mín á lyklaborðinu og sendi þessa grein á visir.is Ég spyr, er engin sem leysir af þegar menn fara í sumafrí? Þarf í að bíða eftir að úr leysist þegar sumarfríi þessara mann líkur? Hver ber ábyrgð á svona forkastanlegum vinnubrögðum? Að öðru leiti er ég góður. Höfundur er trillukarl og fyrrverandi þingmaður
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar