Stígur fram og segir að kviknað hafi í honum út frá rafbyssu lögreglu Eiður Þór Árnason skrifar 7. júlí 2026 19:32 Sviðin rafbyssupíla sást á vettvangi í kirkjugarðinum í Reykjanesbæ eftir atvikið. Vísir/Bjarni Maður sem hlaut alvarleg brunasár eftir að rafbyssu var beitt í aðgerðum lögreglu í kirkjugarði í Reykjanesbæ í maí neitar því að hafa borið eld að sér. Hann hafi verið að fara með bæn fyrir látna ástvini þegar atburðarrásin hófst. „
Ég sé síðan lögreglumenn nálgast mig að aftan og framan og fer bara í panik,“ sagði Mikkael Ingiberg Gunnlaugsson í kvöldfréttum RÚV. Hann hafi sagt þeim að halda sig fjarri og spurt hvað þau vildu honum. Lögreglan segist hafa fengið tilkynningu um einstakling í ójafnvægi en Mikkael hefur glímt við andleg veikindi. Hann segist hafa verið með kveikjara og brúsa með eldsneyti þennan morguninn fyrir bifhjólið sitt. Hann hafi klætt sig úr buxunum og skvett á sig bensíni. „Bara til þess að reyna að láta þá bakka frá mér. Ég hélt að það myndi virka en það hafði þveröfug áhrif.“ Lögreglumaður hafi næst skotið sig með rafbyssu. „Ég finn hitann koma upp bakið og svo bara kviknaði í mér,“ sagði Mikkael í samtali við RÚV. Lögreglan ósammála lýsingu Mikkaels Lögreglan á Suðurnesjum segir ólíklegt að eldur hafi kviknað út frá rafbyssunni, Mikkael hafi verið ógnandi, ekki farið að fyrirmælum og hótað að kveikja í sér eftir að hann hellti yfir sig bensíni. Eftir notkun rafbyssunnar hafi Mikkael svo borið að sér eld. „Ég hellti sjálfur yfir mig en ég kveikti ekki í sjálfum mér,“ sagði Mikkael. Hann fékk alvarlega brunaáverka og var fluttur með sjúkraflugi til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans. Þar var honum haldið sofandi í þrjár vikur. Fram hefur komið að Mikkael hefði þurft barkaþræðingu til að geta andað eftir atvikið. Hann var með lungnabólgu og mikil sýkingarhætta hafi verið vegna brunans. Málið er í rannsókn hjá embætti héraðssaksóknara og nefnd um eftirlit með lögreglu. Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjanesbær Rafbyssur Lögreglan Lögreglumál Tengdar fréttir Enn í lífshættulegu ástandi Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og enn á gjörgæslu að sögn lögmanns mannsins. 8. júní 2026 12:09 Rafbyssum aldrei beitt oftar Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs drógu laganna verðir rafbyssu úr slíðri eða ógnuðu með tækinu í þrjátíu málum og í fimm málum var því beitt. Þetta er mesta notkun rafbyssa á einum ársfjórðungi frá því að þær voru teknar til notkunar en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var rafbyssum beitt næst oftast, eða fjórum sinnum við handtöku. 5. júní 2026 14:49 Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár í kjölfar lögregluaðgerða í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og á gjörgæslu. Mál mannsins er til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannsins, segir stöðuna enn grafalvarlega. 30. maí 2026 11:20 Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Íslendingur á fimmtugsaldri var í gær fluttur til Noregs með sjúkraflugi með brunasár á um helmingi líkamans og þarf að gangast þar undir aðgerðir. Lögmaður mannsins segir lögregluna hafa stórskaðað hann og gengið of harkalega fram þegar rafvarnarvopni var beitt eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva. Hann hefur óskað eftir að héraðssaksóknari rannsaki málið. 20. maí 2026 18:55 Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Fleiri fréttir Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Sjá meira
Enn í lífshættulegu ástandi Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár eftir lögregluaðgerð í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og enn á gjörgæslu að sögn lögmanns mannsins. 8. júní 2026 12:09
Rafbyssum aldrei beitt oftar Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs drógu laganna verðir rafbyssu úr slíðri eða ógnuðu með tækinu í þrjátíu málum og í fimm málum var því beitt. Þetta er mesta notkun rafbyssa á einum ársfjórðungi frá því að þær voru teknar til notkunar en á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var rafbyssum beitt næst oftast, eða fjórum sinnum við handtöku. 5. júní 2026 14:49
Maðurinn enn í lífshættu og á gjörgæslu Karlmaðurinn sem var fluttur til Noregs með brunasár í kjölfar lögregluaðgerða í Reykjanesbæ er enn í lífshættu og á gjörgæslu. Mál mannsins er til rannsóknar hjá embætti héraðssaksóknara. Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður mannsins, segir stöðuna enn grafalvarlega. 30. maí 2026 11:20
Fluttur til Noregs með brunasár á um helmingi líkamans Íslendingur á fimmtugsaldri var í gær fluttur til Noregs með sjúkraflugi með brunasár á um helmingi líkamans og þarf að gangast þar undir aðgerðir. Lögmaður mannsins segir lögregluna hafa stórskaðað hann og gengið of harkalega fram þegar rafvarnarvopni var beitt eftir að maðurinn hafði hellt yfir sig eldfimum vökva. Hann hefur óskað eftir að héraðssaksóknari rannsaki málið. 20. maí 2026 18:55