Rússar ógnuðu bresku herskipi sem siglir við Ísland Kjartan Kjartansson skrifar 6. júlí 2026 11:34 Bresk F-35 orrustuþota fylgir rússneskum „birni“ frá flugmóðurskipinu HMS Prince of Wales í Noregshafi 2. júlí 2026. Breska varnarmálaráðuneytið Breskar orrustuþotur fylgdu eftir rússneskri herflugvél eftir að henni var flogið hættulega nálægt flugmóðurskipi Breta í Noregshafi í síðustu viku. Herskipið sinnir nú eftirliti fyrir Atlantshafsbandalagið norður af Íslandi og fundaði utanríkisráðherra með breskum ráðherra um borð í gær.
Uppákoman átti sér stað á fimmtudag. Rússneskri Tupolev Tu-142-herflugvél var þá ítrekað flugið nálægt breska herskipinu HMS Prince of Wales í Noregshafi. Breska varnarmálaráðuneytið segir að flugvélin hafi nálgast skipið á „hættulegan og ófagmannlegan hátt“. Rússneska flugvélin sleppti síðan fjölda bauja í sjóinn nálægt herskipinu. Slíkar baujur eru sagðar notaðar til þess að finna og fylgjast með kafbátum. Tvær breskar orrustuþotur af gerðinni F-35 af flugmóðurskipinu fylgdu rússnesku vélinni burt. Rússneska herflugvélin sveimar yfir bresku skipalestinni. Hún sleppti síðan baujum í sjóinn nálægt flugmóðurskipinu.Breska varnarmálaráðuneytið HMS Prince of Wales er annað af tveimur flugmóðurskipum Breta. Þetta er í fyrsta skipti sem slíkt skip búið F-35 orrustuþotum sinnir loftrýmisgæslu fyrir Atlantshafsbandalagið. Ríkisútvarpið sagði frá því að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hefði fundað með Dan Jarvis, varnarmálaráðherra Bretlands, um borð í HMS Prince of Wales á hafi úti í gær. Þau hefðu hist á Akureyri og flogið þaðan með þyrlum norður fyrir landið þar sem herskipið var á siglingu. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, með Dan Jarvis, varnarmálaráðherra Bretlands, (3.f.v.) um borð í flugmóðurskipinu HMS Prince of Wales í gær. Breska varnarmálaráðuneytið Um 1.500 manna áhöfn er um borð í flugmóðurskipinu og tveimur öðrum breskum fleyjum sem eru með því í för. Lúxussnekkja Vladímírs Pútín Rússlandsforseta var sögð sigla norður eftir strönd Noregs á leið til Rússlands í síðustu viku. Evrópska blaðið Politico hefur eftir Dan Jarvis, varnarmálaráðherra Bretlands, að Bretar vissu hvar snekkjan væri en hann vildi þó ekki segja til um hvort að flugmóðurskipið fylgdist með ferðum hennar.
Bretland Rússland Hafið Hernaður Tengdar fréttir Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu. 14. febrúar 2026 10:40 Mest lesið „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Erlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins Innlent Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Fleiri fréttir Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Sjá meira
Senda flaggskip breska flotans á norðurslóðir Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, ætlar að senda flugmóðurskipið HMS Prince of Wales og fylgiflota þess á norðurslóðir á þessu ári. Þetta tilkynnti ráðherrann á öryggisráðstefnunni í München í morgun og sagði hann ákvörðunina til marks um staðfestu Breta í að tryggja öryggi á Atlantshafinu. 14. febrúar 2026 10:40