Ræddi við bæði Pútín og Selenskí Agnar Már Másson skrifar 4. júlí 2026 23:31 Þó bæði Rússar og Úkraínumenn segja að tilefni símtalsisn hafi fyrst og fremst verið 250 ára afmæli Bandaríkjanna, bar Úkraínustríði og Íranstríðið á góma. Samsett Mynd Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddi bæði við Volodimír Selenskí Úkraínuforseta og Vladimír Pútín Rússlandsforseta símleiðis í dag, á 250 ára afmæli Bandaríkjanna. Þeir ræddu meðal annars stöðuna á víglínu Úkraínu og framtíðarhorfur Bandaríkjahers í Íran. „
Forsetarnir ræddu vitaskuld um lausn á deilunni í Úkraínu, meðal annars í ljósi væntanlegrar þátttöku Donalds Trump á leiðtogafundi NATO í Tyrklandi 7. og 8. júlí,“ er haft eftir Júrí Úsjakov, utanríkisráðgjafa Rússlandsforseta, í frétt RIA Novosti. Hann sagði að Pútín og Trump tveir hefðu einnig rætt mál á borð við Íran og Mið-Austurlönd í 85 mínútna símtali. Fyrr í dag hafði Selenskí sagt að hann og Trump hefðu einnig rætt stríðið í Úkraínu, sem staðið hefur yfir í meira en fjögur ár í landi hans, og kallaði það „mjög gott símtal“. „Trump forseti og ég ræddum stöðuna sem nú er uppi á víglínunni sem og diplómatískar tilraunir okkar. Það eru raunverulegar líkur á að binda enda á þetta stríð og einbeitni Bandaríkjanna skiptir sköpum. Við höfum samþykkt að halda þessum viðræðum áfram á leiðtogafundi NATO í Ankara [höfuðborg Tyrklands],“ skrifaði Selenskí á X í dag. Búist er við að þjóðhöfðingjar og erindrekar frá 32 löndum, þar á meðal Trump, komi til Ankara frá og með þriðjudegi vegna leiðtogafundarins. Að sögn Úsjanovs lýsti Pútín „raunverulegri stöðu á vígvellinum“ í Úkraínu, þar sem „rússneskar hersveitir sækja örugglega fram“. Á víglínunum hafa rússneskar hersveitir náð nánast engum árangri undanfarna mánuði, aðallega vegna dróna sem hafa hindrað för þungra farartækja og valdið miklu mannfalli beggja vegna. Í dag greindi Selenskí frá því að Úkraínumenn hefðu ráðist á orkuinnviði í Rússlandi til þess að svara árásum Rússa frá því í gær, þar sem 30 manns féllu. Samningaviðræður eru í pattstöðu þar sem stjórnvöld í Moskvu krefjast þess að úkraínskar hersveitir hörfi frá öllu Donetsk-héraði en því hafa Úkraínumenn alfarið hafnað.
Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Donald Trump Vladimír Pútín Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Sjá meira