Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Áróra L Davíðsdóttir skrifar 3. júlí 2026 15:03 Dýrast er að tjalda á höfuðborgarsvæðinu þegar meðalverð fyrir landshluta er skoðað. Vísir/Vilhelm Verð fyrir gistinótt eins fullorðins á tjaldsvæðum landsins hefur hækkað að meðaltali um tæp sjö prósent á milli ára en verð á rafmagni um rúm ellefu prósent. Þegar litið er á meðalverð landshluta er dýrast að tjalda á höfuðborgarsvæðinu en ódýrast á Vesturlandi.
Á tjaldvef Bliku er verðskrám tjaldsvæða um land allt safnað saman á hverju ári en upplýsingarnar komi frá rekstraraðilum tjaldstæðanna og tjaldsvæðagestum. Hækkandi verðlag tjaldsvæða hefur verið til umræðu upp á síðkastið, meðal annars á Facebook-hópum tengdum útilegum og ferðalögum. Á vef Bliku segir að verð á gistinótt fyrir einn fullorðinn hafi hækkað um tæp 7 prósent frá því í fyrra. Rafmagn á tjaldsvæðum hafi þó hækkað öllu meira en að meðaltali hækkaði það um rúm 11 prósent á milli ára. Verð gistingar ráðist að miklu leyti af þjónustustigi tjaldsvæðanna. Verð fari meðal annars eftir því hvort rukkað sé fyrir rafmagn, hvort fólk ætli sér að gista í tjaldi, fellihýsi eða hjólhýsi. Dýrast að tjalda á höfuðborgarsvæðinu Samkvæmt meðalverði landshluta sé dýrast að tjalda á höfuðborgarsvæðinu. Tjaldsvæðið í Reykjavík, sem er í Laugardal, sé dýrasta tjaldsvæðið á landinu fyrir flest fjölskyldumynstur. Þar kosti stök gistinótt fyrir fullorðinn 3.150 krónur, en greiða þarf aukalega fyrir bæði tjald eða ferðavagn og rafmagn ef óskað er eftir því. Ódýrast sé hins vegar að tjalda í Hafnarfirði á höfuðborgarsvæðinu en á tjaldsvæðinu á Víðistaðatúni kostar gistinótt fyrir fullorðinn 2.500 krónur, án rafmagns og gjalds fyrir tjald eða ferðavagn. Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Tveir fullorðnir með barn þurfi að greiða að meðaltali 4.589 krónur fyrir gistinótt á tjaldsvæðum Vesturlands. Í samanburði greiði sama fjölskylda að meðaltali 5.502 krónur á Austurlandi, eða tuttugu prósent meira. Ódýr tjaldsvæði sé víða að finna. Í Selvogi sé ókeypis tjaldsvæði sem taki við frjálsum framlögum og á Kleifum við Kirkjubæjarklaustur kosti nóttin fyrir fullorðinn þúsund krónur. Útilegukortið stendur til boða fyrir alvöru útilegugarpa en það gildir mest fyrir tvo fullorðna, fjögur börn undir 16 ára aldri og eitt tjald eða ferðavagn. Það gildir í 28 gistinætur frá því að tjaldsvæðin opna til 15. september. Kortið kostar 24.900 krónur og því kostar gistinóttin (ef allar 28 nætur eru nýttar) tæpar 900 krónur fyrir fjölskylduna.
Tjaldsvæði Ferðalög Neytendur Mest lesið Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Viðskipti innlent Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Viðskipti innlent Topp tíu listinn 2026: Þetta eru bestu útlöndin fyrir fjarvinnu eða eftirlaunalífið Atvinnulíf Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Viðskipti innlent Ástandið minni á 2007 Neytendur Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Viðskipti innlent Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Neytendur Framtíðarsýn Svíans að færa flugið nær fólkinu Viðskipti erlent Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ástandið minni á 2007 Innkalla Euro Market brauð vegna málmhlutar Innkalla frosin hindber eftir að skordýr fannst í pokanum Kalla inn pylsur vegna prentvillu Breytingar á fyrsta farrými Innkalla te sem innihélt ál Sektir Neytendastofu á bílastæðafyrirtækin „dropi í hafið“ Bílastæðafyrirtækin sektuð um hundruð þúsunda Akureyringur vekur athygli í Bretlandi fyrir þrautseigju sína Lygilegri baráttu gegn easyJet lauk með óvæntum sigri Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Arion banki hækkar gjöld Endanlega ljóst að forsenduákvæðið haldi ekki Kalla inn fæðubótarefni Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Gjaldskrá Strætó hækkuð á ný Vekja athygli á innköllun leikfangs Innkalla vegna „óöruggs kjöts“ Lite-æðið hafi Íslendinga að fíflum Kalla inn súkkulaðibitakökur Þungmálmar flæða úr steypujárnspönnu Kreditkortavandi hjá Landsbankanum leystur Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Thule lækkar í prósentu Sjá meira