Mótmælendur í Suður-Afríku krefjast brottflutnings innflytjenda Áróra L Davíðsdóttir skrifar 1. júlí 2026 11:09 „Herferð “ mótmælendahópa gegn innflytjendum í landinu hefur leitt til þess að tugþúsundir hafa flúið öryggis síns vegna. Getty Mótmæli voru haldin í Suður-Afríku í gær víðs vegar um landið. Mótmælendur krefjast þess að óskráðir innflytjendur séu látnir yfirgefa landið en mótmælendahópar settu fram óformlegan „frest“ fyrir óskráða innflytjendur til þess að yfirgefa landið í síðasta mánuði. „Herferð“ þeirra gegn innflytjendum í landinu hefur leitt til þess að tugþúsundir hafa flúið öryggis síns vegna.
Verslunum og fyrirtækjum hafi verið lokað í Durban, borg við austurströnd Suður-Afríku, þar sem nokkur þúsund mótmælendur örkuðu fylktu liði um götur miðborgarinnar segir í umfjöllun BBC. Mótmælendahópar höfðu sett fram „frest“ fyrir óskráða innflytjendur til þess að yfirgefa landið í júní en sá „frestur“ rann út í gær. Á dögunum fyrir frestinn hafi þúsundir flúið heimili sín öryggis síns vegna. Lögreglan í Suður-Afríku segir að meira en 25 þúsund manns, flestir frá öðrum Afríkuríkjum, hafi verið sendir til síns heimalands. Þar hafi mótmælendur afhent embættismönnum minnisblað með kröfum sínum. Leiðtogi hópsins March and March sem stendur fyrir mótmælunum segði mótmælin halda áfram hvern fimmtudag næstu sex mánuði til að krefja stjórnvöld um aðgerðir í innflytjendamálum. Annar mótmælandi segir þá ætla að „þrýsta á lögregluna“ að handtaka útlendinga sem dvelji ekki löglega í landinu, í samtali við BBC. Hér að neðan má sjá myndband af mótmælum í Jóhannesarborg frá fréttaveitunni AP. Lögreglan, auk hersins í landinu, hafi verið kölluð út vegna ótta um að ofbeldi brytist út meðal mótmælenda, í Durban og hlutum Jóhannesarborgar. Lögregluyfirvöld segja mótmælin hafa farið að mestu leyti friðsamlega fram. Cyril Ramaphosa, forseti Suður-Afríku, hafi hitt nokkra leiðtoga mótmælendahópanna aðfaranótt gærdagsins til að draga úr spennu. Hann hafi ítrekað við mótmælendur að haga sér friðsamlega en jafnframt viðurkennt að umbætur séu nauðsynlegar í innflytjendamálum landsins.
Suður-Afríka Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira