Draumur Bergrósar að rætast: „Óraunverulegt“ Valur Páll Eiríksson skrifar 1. júlí 2026 07:00 Draumur Bergrósar rættist og hún er á leið á Heimsleikana. Vísir/Lýður Bergrós Björnsdóttir fékk í vikunni sæti á komandi Crossfit-leikum. Hún verður fyrsta íslenska konan til að vera meðal keppenda í þrjú ár og langþráður draumur að rætast.
Bergrós deildi tilfinningaríkri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram í gær þar sem hún á vart orð yfir því að hafa loks tryggt sér sæti á stóra sviðinu. Bergrós hefur þrisvar tekið þátt á heimsleikum unglinga en verður nú á stóra sviðinu í flokki fullorðinna í fyrsta sinn. Hún lagði sérlega mikið á sig í ár til að ná því markmiði og þakkar foreldrum sínum stuðninginn. Þökk sé þeim stuðningi hafi hún getað tekið sér árspásu frá vinnu til að sinna sókninni að heimsleikasæti. „Þetta tímabil lagði ég allt í sölurnar. Þökk sé stuðningi foreldra minna og trú þeirra á mér gat ég tekið mér frí frá skóla í eina önn til að æfa á fullu og elta drauminn minn um að komast á CrossFit-leikana. Ég hámarkaði hvern dag og ég er svo ótrúlega ánægð að þetta hafi allt saman tekist,“ segir Bergrós á Instagram. View this post on Instagram A post shared by Bergrós Björnsdóttir (@bergrosbjornsdottir) d „Það er óraunverulegt að hugsa til þess að eitthvað sem ég hef unnið svo mikið að og dreymt um í mörg ár sé í raun að gerast,“ „Ég er ótrúlega þakklát öllum þeim sem hafa trúað á mig og stutt mig á leiðinni. Þið vitið hver þið eruð,“ „Þetta ótrúlega fólk á bak við Hótel Rangá hefur haft gríðarleg áhrif á ferðalag mitt með stuðningi sínum. Fjölskylda mín og ég erum ævinlega þakklát,“ segir hún og bætir við: „Og síðast en ekki síst, mjög sérstakar þakkir til mömmu minnar, pabba og þjálfarans míns Eggerts. Þau hafa staðið við hlið mér í gegnum allt og ég hefði ekki getað gert þetta án þeirra,“ segir Bergrós. Frá 2009 til 2023 átti Ísland keppendur í kvennaflokki á leikunum en flestar voru þær fimm á heimsleikunum árið 2019. Þar kepptu Anníe Mist Þórisdóttir, Katrín Tanja Davíðsdóttir, Þuríður Erla Helgadóttir, Sara Sigmundsdóttir og Oddný Eik Gylfadóttir. Komandi leikar verða þeir tuttugustu í sögunni og fara fram 21.-26. júlí næst komandi. Áðurnefnd Annie Mist varð heimsmeistari í kvennaflokki árin 2011 og 2012 en Katrín Tanja Davíðsdóttir vann einnig í tvígang, 2015 og 2016. Þá níu heimsleika síðan að Katrín Tanja fagnaði sigri hefur hin ástralska Tia-Clair Toomey unnið í átta skipti, þar af síðustu tvenna leika.
CrossFit Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Fleiri fréttir Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Gullboltinn afhentur í kvöld Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Sjá meira