Tvær íslenskar lyftingakonur urðu Evrópumeistarar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júní 2026 09:32 Anna Guðrún Halldórsdóttir vann gullverðlaun á þriðja Evrópumótinu í röð. @annagudrunh Íslenskar lyftingakonur náðu glæsilegum árangri á Evrópumeistaramóti öldunga í ólympískum lyftingum sem fram fór í Waregem í Belgíu dagana 19. til 27. júní. Níu keppendur kepptu fyrir Íslands hönd og uppskáru íslenska lyftingafólkið okkar tvo Evrópumeistaratitla auk fjölda góðra einstaklingsárangra.
Anna Guðrún Halldórsdóttir varð Evrópumeistari í 86 kílóa flokki 55 ára kvenna. Anna Guðrún lyfti 58 kílóum í snörun og 76 kílóum í jafnhendingu eða samtals 134 kílóum. Anna Guðrún tryggði sér þar með gullverðlaunin. Anna Guðrún var ekki bara að vinna Evrópugullið heldur einnig að verja það. Þetta er jafnframt þriðji Evrópumeistaratitill hennar í röð. Hún hafnaði jafnframt í sextánda sæti af 417 keppendum sem kláruðu keppni þvert á flokka. View this post on Instagram A post shared by Hrund Scheving (@hrundscheving) Annar Evrópumeistaratitill Íslands kom í -77 kílóa flokki 45 ára kvenna þar sem Hrund Scheving stóð uppi sem sigurvegari með 70 kílóum í snörun og 86 kílóum í jafnhendingu. Hún lyfti því samtals 156 kílóum en Hrund hafnaði í 31. sæti af 417 keppendum sem kláruðu keppni þvert á flokka. Í sama flokki og Hrund hafnaði Erla Guðmundsdóttir í fimmta sæti með 63 kg í snörun, 85 kg í jafnhendingu og 148 kg samanlagt. Jóhannes Þór Ævarsson keppti í flokki M50-94 kg og hafnaði í 11. sæti með 78 kg í snörun, 100 kg í jafnhendingu og 178 kg samanlagt. Gísla Rún Kristjánsdóttir keppti í flokki W45 -63 kg og hafnaði í 12. sæti með 40 kg í snörun, 56 kg í jafnhendingu og 96 kg samanlagt. Dísa Edwards keppti í flokki W35 –63 kg og hafnaði í 7. sæti með 68 kg í snörun, 80 kg í jafnhendingu og 148 kg samanlagt. Margrét Bára Þorkelsdóttir keppti í flokki W40 -69 kg og hafnaði í 4. sæti með 60 kg í snörun, 88 kg í jafnhendingu og 148 kg samanlagt. Steinunn Sveinsdóttir keppti í W60 -86 kg og hafnaði í 5. sæti með 32 kg í snörun, 38 kg í jafnhendingu og 70 kg samanlagt. Sigríður Lína Viðarsdóttir keppti í W35 -77 kg og hafnaði í 15. sæti með 57 kg í snörun, 70 kg í jafnhendingu og 127 kg samanlagt. Íslenska kvennaliðið hafnaði jafnframt í 9. sæti í stigakeppni þjóða af 10 þjóðum með samtals 164 stig, einu stigi minna en Írland í 8. sæti. Frakkland sigraði í liðakeppni kvenna með 215 stig. View this post on Instagram A post shared by Lyftingasamband íslands (@icelandic_weightlifting)
Kraftlyftingar Mest lesið Gísli miður sín: „Fann að það var eitthvað mikið að“ Fótbolti Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Enski boltinn Hleypur aldrei aftur eftir hjartastopp Sport Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íslenski boltinn Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM Fótbolti Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Handbolti Strákarnir réðu ekki við Finnana Körfubolti Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Íslenski boltinn Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Fótbolti Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sinner missir af Opna bandaríska United nær samkomulagi við Brighton um Baleba „Kærkomið að fá eitt svona mark“ Afturelding valtaði yfir Ægi og skoraði sjö mörk Karólína Lea skoraði fyrir Inter „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Strákarnir réðu ekki við Finnana Curtis Jones farinn til Inter Glódís skoraði í stórsigri Bayern Hlín og Guðrún skildu jafnar í toppslagnum Arsenal byrjar titilvörnina sannfærandi Orri Steinn spilaði allan leikinn í tapi Ísland tapaði fyrir Portúgal Óliver heldur áfram að slá í gegn Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Uppgjörið: FH - Víkingur R 0-1 | Magnaður sigur Víkinga Uppgjörið: Þór/KA - Valur 0-1| Valskonur úr fallsæti Uppgjörið: ÍBV - Þróttur 1-2 | Ekki góð endurkoma Semur lag fyrir frjálsíþróttamót sem haldið verður annað hvert ár Kylfingarnir „kjöt á hlaðborði“ í Kanada Leikmenn beggja liða fá bönn eftir úrslitaleik HM BBC birtir innslag um sögulegt einvígi KR og Liverpool Slasaði sig í boxi og verður ekki með um helgina Geta Scheffler og McIlroy ekki spilað vel á sama tíma? Lykilmaður að skrifa undir nýjan samning hjá Chelsea „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sjáðu steinsofandi vörn Víkings í mikilvægasta einvígi tímabilsins Strippaði á Kópavogsvelli fyrir Bestu deildina Íhuga að þvinga fram fordæmalausa kosningu um vantraust Sjá meira