Neytendur

Einungis sjö bílar kallaðir inn

Bjarki Sigurðsson skrifar
Ekki öll Land Rover-ökutæki eru tengiltvinnbílar.
Ekki öll Land Rover-ökutæki eru tengiltvinnbílar. Getty

Eigendur Land Rover-bíla sem BL hefur innkallað vegna skipta á háspennurafhlöðu þurfa ekki að hætta að keyra bílana þar til þeir komast í viðgerð. Öruggt er að keyra þá en einungis sjö ökutæki er um að ræða. 

Í gær innkallaði bílaumboðið BL fjórar undirtegundir Land Rover-ökutækja vegna hættu á ofhitnun háspennurafhlöðu sem gæti orðið til þess að kvikni í þeim. 

Í yfirlýsingu frá BL segir að innköllunin nái til sjö bifreiða sem umboðið flutti inn til landsins. Unnið sé að því að hafa samband við eigendur bílanna og bóka tíma í viðgerð. 

„Rafhlöðurnar eru væntanlegar til landsins í lok júlí og því verða viðgerðartímar bókaðir í byrjun ágúst. Land Rover hefur ekki gert kröfu um að bifreiðarnar verði teknar úr notkun eða stöðvaðar. Því er öruggt að nota bílana þar til skipt hefur verið um rafhlöðu,“ segir í yfirlýsingunni. 

„Land Rover-eigendur geta athugað hvort opin innköllun sé á þeirra bifreið með því að spyrja spjallmennið á landrover.is eða bl.is. Einnig er hægt að sjá stöðuna á BL.is undir flipanum „Þjónusta“ með því að velja „Er innköllun á mínum bíl?“,“ segir enn fremur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×