Hagnaður Samherja nam um ellefu milljörðum Atli Ísleifsson skrifar 23. júní 2026 14:26 Baldvin Þorsteinsson tók við stöðu forstjóra Samherja af Þorsteini föður sínum á síðasta ári. Baldvin segir að uppgjörið sýni að grunnrekstur Samherja sé traustur og fjárhagur þess sterkur. Vísir/Vilhelm Tekjur samstæðu Samherja námu 78,4 milljörðum króna á síðasta ári og nam hagnaður fyrir skatta, afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) 10,7 milljörðum króna og jókst um 1,8 milljarða milli ára.
Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samherja. Þar segir að hagnaður af rekstri (EBIT) hafi verið 7,3 milljarðar króna samanborið við 6,1 milljarðs króna hagnað árið áður og jókst hann því um tæplega 19 prósent á milli ára. Aukinn rekstrarhagnaður er sagður skýrast öðru fremur af háu afurðaverði á botnfiskmörkuðum og traustum rekstri. Eignir í lok árs námu 131,3 milljörðum króna og eigið fé nam 99,6 milljörðum króna. Eiginfjárhlutfall í árslok var 75,8 prósent. Haft er eftir Baldvini Þorsteinssyni forstjóra að ársuppgjör Samherja sýni að grunnrekstur félagsins sé traustur og fjárhagur þess sterkur. „Það gerir Samherja kleift að horfa til frekari fjárfestinga, einkum þeirra sem miða að því að auka samkeppnishæfni félagsins og þar með íslensks sjávarútvegs,“ segir Baldvin. Forstjóraskipti á árinu Í tilkynningunni segir að árið 2025 hafi verið viðburðaríkt hjá Samherja. „Tímamót urðu þegar stofnendur félagsins, Þorsteinn Már Baldvinsson og Kristján Vilhelmsson, létu af störfum eftir 42 ára starf hjá félaginu eða frá stofnun þess. Þorsteinn Már í starfi forstjóra og Kristján framkvæmdastjóri útgerðarsviðs. Sjávarútvegur hefur verið ævistarf og ástríða þeirra beggja og náið samstarf þeirra hefur verið kjölfestan í rekstri Samherja alla tíð frá 1983. Húsnæði Samherja á Dalvík. Vísir/Vilhelm Þá urðu einnig ákveðin tímamót í rekstri Samherja fiskeldis ehf. þegar nýir hluthafar, bæði innlendir og erlendir fjárfestar, komu inn í félagið í kjölfar fjármögnunar Eldisgarðs, nýrrar landeldisstöðvar fyrir lax, á Reykjanesi. Eftir breytingar á hluthafahópnum á Samherji hf. 61,5% eignarhlut í móðurfélagi Samherja fiskeldis eftir að hafa átt tæplega 100% hlutafjár í byrjun ársins. Veiðar og vinnsla gengu vel Árið 2025 var gott ár í veiðum, vinnslu, landeldi og sölu afurða. Samherji gerði út flota sjö fiskiskipa á árinu. Um er að ræða fjóra ísfisktogara, tvö uppsjávarskip og einn frystitogara. Ísfisktogarar félagsins lönduðu 26.691 tonni af fersku hráefni á síðasta ári. Mestur var aflinn í þorski eða 16 þúsund tonn og sem fyrr voru aðrar helstu botnfisktegundir ýsa, ufsi og karfi. Landaður afli ísfisktogara var að langstærstu leyti unninn í fiskvinnslum Samherja á Eyjafjarðarsvæðinu. Annars vegar í landvinnslunni á Dalvík og hins vegar í landvinnslu ÚA á Akureyri. Þessar fiskvinnslur tóku samtals á móti 33.166 tonnum af hráefni á árinu,“ segir í tilkynningunni. Þá segir að uppsjávarskip Samherja hafi landað 51.287 tonnum af hráefni á árinu. Mest hafi verið landað af kolmunna eða 22.262 tonnum.
Sjávarútvegur Uppgjör og ársreikningar Akureyri Dalvíkurbyggð Mest lesið Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Viðskipti innlent Uppsagnir fram undan og óttinn vex Atvinnulíf Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Viðskipti innlent Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Viðskipti innlent Ráðnir forstöðumenn hjá OK Viðskipti innlent Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Viðskipti innlent Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Viðskipti innlent Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál Viðskipti innlent „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Viðskipti innlent Brynja til Fastus frá Samkaupum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum John Strickland: Icelandair þarf að vera snjallt þegar nýjar þotur breyta leiknum Samkeppnishæfni Íslands og annarra Norðurlanda fellur milli ára Þróunin í þá átt að verða enn meiri kaupendamarkaður Nýtt endurskoðunar- og ráðgjafarfyrirtæki undir merkjum LOGOS Villi Birgis grætur Krambúðina á Akranesi Bláa lónið festir kaup á Arctic Adventures og stefnir á markað LánHeimur ekki undir eftirliti fjármálaeftirlits ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Byrjaði sem fulltrúi í söludeild dótturfyrirtækis og er nú framkvæmdastjóri hjá Eimskip Klára námslánið eða greiða inn á húsnæðislánið? Milla ætlar í formanninn Efna til útboðs hlutabréfa að virði 125 milljóna dala Tilboð Reita í uppbyggingu hjúkrunarheimilis valið Sjá meira