ESB gæti markað endalok umdeildra skilmála Icelandair Eiður Þór Árnason skrifar 16. júní 2026 13:28 Flugvélar Icelandair við Leifsstöð. Vísir/Vilhelm Evrópuþingið og ráðherraráð Evrópusambandsins (ESB) hafa náð samkomulagi um uppfærðar reglur um réttindi flugfarþega. Tillögurnar fela meðal annars í sér að flugfélögum verði gert skylt að sjá til þess að hver sá sem ferðast með barni undir fjórtán ára aldri fái að sitja í næsta sæti án aukakostnaðar. Það sama á við um ófrískar konur og farþega með fötlun og skerta hreyfigetu.
Síðastnefndi hópurinn mun sömuleiðis eiga rétt á bótum, endurbókun og aðstoð ef farþegar missa af flugi vegna þess að flugfélagi tekst ekki að koma þeim að brottfararhliði í tæka tíð. Þá er lagt til að flugrekendum verði gert óheimilt að banna fólki að fara um borð á grundvelli þess að farþegi nýtti ekki fyrri fluglegg í sömu bókun. Töluvert hefur verið fjallað um umdeilda skilmála Icelandair sem hafa leitt til þess að bókun er felld niður ef farþegi mætir ekki í fyrra flug. Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, staðfestir að mætingarskyldan eða svokölluð „no-show“-regla sé enn við lýði hjá félaginu en taldi annars of snemmt að tjá sig um vendingarnar í Brussel á þessu stigi. Þau svör fengust frá Icelandair fyrr á þessu ári að þetta fyrirkomulag væri þekkt meðal alþjóðlegra flugfélaga og hjálpaði til við að tryggja að sæti nýttust öðrum farþegum. Í sumum tilfellum væri hægt að vernda bókunina ef farþegar láti vita tímanlega að þeir muni ekki nýta fyrsta fluglegg. Eiga að sýna fargjald með handfarangri fyrst Ef uppfærðu reglurnar um réttindi flugfarþega ná fram að ganga verður flugfélögum, bókunarsíðum og leitarvélum gert skylt að birta fyrst fargjald sem inniheldur handfarangurstösku til að auðvelda jafnan samanburð milli flugfélaga. Einnig er lagt til að flugfélögum verði bannað að rukka farþega fyrir að leiðrétta innsláttarvillur í nafni sínu. Áður en breytingarnar taka gildi þarf Evrópuþingið og ráðherraráð Evrópusambandsins að staðfesta bráðabirgðasamkomulagið á næstu sex til átta vikum. Evrópuþingið áformar svo að greiða atkvæði um samkomulagið á þingfundi í júlí. Talið er að breytingarnar gætu tekið gildi á næsta ári og myndu þær einnig hafa áhrif á rétt íslenskra flugfarþega. Reglurnar höfðu ekki verið uppfærðar frá árinu 2004 og ekki náðst samstaða um að breyta þeim í yfir áratug. Fjallað er um samkomulagið á vef Evrópuþingsins og vef ráðherraráðsins. Þurfa ekki að greiða bætur ef flugi er aflýst vegna verkfalls Samkvæmt tillögunum verður flugfélögum skylt að leyfa farþegum að taka með sér persónulegan hlut á borð við handtösku eða bakpoka án aukagjalds og eiga þeir áfram rétt á greiðslu ef lendingartíma seinkar um minnst þrjár klukkustundir eða ferð er aflýst innan við fjórtán dögum fyrir brottför. Þetta mætti andstöðu leiðtoga sumra Evrópuþjóða sem vildu að reglum yrði breytt í þágu flugfélaga. Á sama tíma myndu nýju reglurnar heimila flugrekendum að sleppa því að borga bætur ef seinkun eða aflýsing kemur til vegna óviðráðanlegra aðstæðna. Náttúruhamfarir, stríðsátök, óveður, óstýrilátir farþegar og verkfall sem hefur áhrif á starfsemi flugvalla, flugumferðarstjórnunar eða flugafgreiðslu er meðal þess sem er sérstaklega tilgreint. Athygli vekur að lagt er til að bótaupphæð verði áfram sú sama og ákveðið var árið 2004 eða 250 til 600 evrur, sem samsvarar um 36 til 86 þúsund krónum. Tekur upphæðin áfram mið af fluglengd í kílómetrum en heimilt er að lækka hana ef seinkun var ekki lengri en fjórir tímar.
Flug Icelandair Evrópusambandið Tengdar fréttir „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Erlendum karlmanni, á leið í heimsókn til tengdafjölskyldu sinnar á Íslandi, var meinaður aðgangur í flugvél Icelandair því gildistími vegabréfs hans var innan við þrír mánuðir. Með neyðarvegabréf í hendi keypti hann nýtt og dýrt flug. Hann rak í rogastans þegar hann ætlaði að halda heim á leið viku síðar og átti ekki lengur sæti í fluginu. Formaður Neytendasamtakanna segir reglu flugfélagsins óskiljanlega en forsvarsmenn Icelandair segja að um vel þekkt fyrirkomulag sé að ræða. 30. janúar 2026 06:30 Icelandair skýri betur fjárhæð skrópgjalds og fleira til Neytendastofa hefur beint þeim fyrirmælum til Icelandair að tilgreina í flutningsskilmálum sínum með hvaða hætti farþegar skuli senda félaginu tilkynningar um að þeir hyggist ekki nýta einhvern hluta flugmiða og fyrir hvaða tímamark. 28. desember 2023 14:31 Vill að Icelandair felli niður skilmála um mætingarskyldu í flug Reglan þekkist víða um heim en hún er þannig að mæti farþegi ekki í fyrri legg flugferðar fellir flugfélagið niður aðra leggi ferðarinnar. 22. júlí 2019 21:00 Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira
„Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Erlendum karlmanni, á leið í heimsókn til tengdafjölskyldu sinnar á Íslandi, var meinaður aðgangur í flugvél Icelandair því gildistími vegabréfs hans var innan við þrír mánuðir. Með neyðarvegabréf í hendi keypti hann nýtt og dýrt flug. Hann rak í rogastans þegar hann ætlaði að halda heim á leið viku síðar og átti ekki lengur sæti í fluginu. Formaður Neytendasamtakanna segir reglu flugfélagsins óskiljanlega en forsvarsmenn Icelandair segja að um vel þekkt fyrirkomulag sé að ræða. 30. janúar 2026 06:30
Icelandair skýri betur fjárhæð skrópgjalds og fleira til Neytendastofa hefur beint þeim fyrirmælum til Icelandair að tilgreina í flutningsskilmálum sínum með hvaða hætti farþegar skuli senda félaginu tilkynningar um að þeir hyggist ekki nýta einhvern hluta flugmiða og fyrir hvaða tímamark. 28. desember 2023 14:31
Vill að Icelandair felli niður skilmála um mætingarskyldu í flug Reglan þekkist víða um heim en hún er þannig að mæti farþegi ekki í fyrri legg flugferðar fellir flugfélagið niður aðra leggi ferðarinnar. 22. júlí 2019 21:00