Búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. júní 2026 07:31 Már Gunnarsson opnaði sig um áhyggjur af aðgerðinni en lét svo vita að hún hefði gengið vel. @mar_gunnarsson Sundmaðurinn öflugi Már Gunnarsson fór í aðgerð í gær til að laga gömul meiðsli eftir slys á æfingu. Þetta er í annað skiptið sem hann reynir að láta laga vandamálið og hann viðurkenndi að hann hafi kviðið mikið fyrir enda klúðraðist sams konar aðgerð fyrir nokkrum árum síðan,
Már sagði á samfélagsmiðlum sínum söguna af meiðslunum fyrir aðgerðina og þakkaði síðan fyrir allar kveðjurnar eftir hana. „Það er sannarlega hægt að segja að það sé stór dagur hjá mér í dag. Fyrir tíu árum lenti ég í því óhappi að ég var að æfa flugspretti með froskalöppum og ég lenti beint á bakkanum með andlitið á mér. Síðan þá hef ég ekki getað andað almennilega með nefinu og þetta hefur hrjáð mig alveg rosalega mikið,“ sagði Már fyrir aðgerðina. „Tveimur árum seinna fór ég til læknis sem sagðist geta lagað þetta og hann setti mig í aðgerð sem að síðan klúðraðist. Viðkomandi læknir missti síðan lækningaleyfið einhverju einu og hálfu ári síðar, þannig að þetta var mjög sérstakt,“ sagði Már. „Núna er ég að fara í aðra aðgerð og já, hjá nýjum lækni sem á að vera rosalega fær og ég er að vonast til að við getum núna bara klárað þetta vandamál þannig að ég geti farið að anda aftur með nefinu,“ sagði Már. „En ég get sagt ykkur það, ég var bókaður í þessa aðgerð fyrir fjórum mánuðum síðan og ég er búinn að vera með martraðir af kvíða fyrir þessu og já, ég er rosalega stressaður auðvitað bara út af fyrri reynslu. Ég man að síðast þegar ég fór í þessa aðgerð, sko, ég var bara mánuðinn eftir, það var bara algjör hryllingur,“ viðurkenndi Már sem vildi deila þessu með fylgjendum sínum. Það var að venju stutt í húmorinn. „Það er mikilvægt að anda með nefinu, gott fólk,“ sagði Már en kom svo aftur inn eftir aðgerðina. „Ég vildi bara segja hvað mér þótti fallegt að þessi öll skilaboðin sem þeir sendu mér út af myndbandinu mínu í morgun. Ég átti ekki von á svona miklum viðbrögðum en mér þótti virkilega vænt um það að heyra frá ykkur og vita að þið væruð að hugsa til mín. Læknarnir segja að aðgerðin hafi gengið vel og ég ætla ekki að segja að þetta hafi verið gaman en núna þarf ég bara að jafna mig, hvíla mig og vera rólegur,“ sagði Már. Nú er bara að senda Má batakveðjur og vonandi kemur hann sterkari út úr þessu. View this post on Instagram A post shared by Már (@mar_gunnarsson) View this post on Instagram A post shared by Már (@mar_gunnarsson)
Sund Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira