Innlent

Á­höfnin hlúði að Hólm­steini á siglingunni til Hval­fjarðar

Sigurgeir Þorkelsson skrifar
DJI_20260618194203_0506_D - frame at 0m18s
Vísir

Mótmælaaðgerð Hólmsteins Harðarsonar, þar sem hann kom sér fyrir í tunnu í mastri hvalveiðiskipsins Hvals 9, vakti mikla athygli í gær. Með því vildi hann freista þess að fresta för skipsins út til veiða. Það fór engu að síður svo að skipið lagði úr Reykjavíkurhöfn og sigldi norður til Hvalfjarðar. 

Áhöfn bað Hólmstein um að gefja upp persónuupplýsingar, líkt og nafn og kennitölu. Útlit er fyrir að upplýsingarnar hafi verið nýttar í að Vísir

Hvalur 8, annað hvalveiðiskip Hvals ehf., hélt út til æfinga og mættust skipin út á miðjum firði. Vísir

Hólmsteini kólnaði mjög þegar út á sjó var komið.Vísir
Hvalavinir, sem mótmælt hafa fyrirhuguðum hvalveiðum, segja Hólmstein ekki á þeirra vegum. Vísir

Skipið lagði að bryggju laust fyrir klukkan átta í gærkvöldi eftir um þrjá tíma á siglingu.Vísir

Þegar í höfn var komið beið lögregla með körfubíl.Vísir

Það tók nokkra stund að tala Hólmstein niður úr tromlunni.Vísir

Nokkur fjöldi hafði safnast saman á bryggjunni, þar á meðal lögregluþjónar. Til vinstri á myndinni má sjá körfubílinn. Vísir

Lögreglumaðurinn í körfunni ræddi Hólmstein í um klukkustund áður en hann fékkst til að yfirgefa skipið.Vísir

Hólmsteinn samþykkti að yfirgefa skipið, var færður í öryggisbúnað og síðan komið yfir í körfuna. Vísir

Vísir sýndi frá atburðarásinni í beinni útsendingu. Þegar mest var fylgdust um 800 manns með henni. Hólmsteinn sígur hér niður í átt til jarðar. Vísir

Þegar niður á jörðu faðmaði Hólmsteinn, hér fyrir miðri myndi í gráum jakka, að sér lögreglumanninn sem sannfærði hann um að yfirgefa skipið. Lögregla skutlaði honum í kjölfarið út á Kjalarnes þaðan sem hann fékk far áleiðis til Reykjavíkur með Hvalavinum. Vísir

Óvíst hvort af hljótist kærumál

Fréttastofa ræddi fyrr í dag við lögmann Hólmsteins, Katrínu Oddsdóttur. Hún segir svar Hvals að sigla af stað vera "gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð" og segir ekki vera ljóst á þessum tímapunkti hvort atburðarásin muni leiða til ákæra. Þá gagnrýnir hún einnig hina miklu heift sem beinst hafi að Hólmsteini í kommentakerfum landsins. 

„Hvað ætlaði Hvalur hf. að gera ef þessi maður myndi detta niður á miðri leið einhvers staðar milli Reykjavíkur og Hvalfjarðar? Hvernig ætluðu þau að hjálpa honum ef hann hefði byrjað að klifra þarna í mastrið eitthvað af stað án þess að vera öruggur?“, spyr Katrín.


Tengdar fréttir

Sigldu af stað með mótmælandann um borð

Hvalveiðiskipið Hvalur 9 hefur siglt úr höfn en Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu mastursins til að mótmæla hvalveiðum. Hann sagðist fyrr í dag ekki ætla niður sjálfviljugur en að hann væri með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. 

„Ég veit ekki hvað annað ég get gert til að hjálpa hvölunum“

Hólmsteinn Harðarson situr nú í tunnu masturs á hvalveiðiskipi við Reykjavíkurhöfn til að mótmæla hvalveiðum. Hann veit ekki hversu lengi hann getur verið uppi. Hann er með takmarkað nesti, eitthvað vatn og lítið batterí á símanum. Hann segist ekki vita hvað annað hann getur gert til að mótmæla hvalveiðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×