Innlent

Elín Hall er fjall­konan í Reykja­vík í ár

Freyja Þórisdóttir skrifar
Elín Hall hefur risið hratt upp á stjörnuhimininn.
Elín Hall hefur risið hratt upp á stjörnuhimininn. Vísir/Lýður Valberg

Leikkonan og söngkonan Elín Sif Halldórsdóttir er fjallkonan í ár. Lýðveldi Íslands er áttatíu og tveggja ára í dag og af því tilefni var blásið til hátíðarhalda víða um land og þar á meðal í Reykjavík. Að vanda hvíldi mikil leynd yfir því hver mun fara með hlutverk fjallkonunnar þar til hún gengur út úr Alþingishúsinu klædd skautbúningnum.

Elín var í glæsilegum skautbúningi, sem er árið um kring í vörslu Árbæjarsafns, og við hann er stokkbelti með víniðarmunstri úr silfri og brjóstnæla í stíl. Hún flutti ávarp eftir Braga Valdimar Skúlason.

Fjallkonan er tákn Íslands en hún var fyrst nefnd í kvæði Bjarna Thorarensen, Eldgamla Ísafold, sem var ort á fyrsta áratug 19. aldar. Hugmyndin um konu sem tákn Íslands kom þó fram fyrr, í kvæði Eggerts Ólafssonar, Ofsjónir, frá árinu 1752.

Þegar lýðveldið Ísland var sett þann 17. júní 1944 stóð til að Kristjana Milla Thorsteinsson, sem hafði verið valin fjallkona, flytti ljóð við athöfnina en hún fékk aldrei að stíga á svið.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×