Hvalveiðiundirbúningur vonbrigði en styðja ekki aðgerðir Watson Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 16. júní 2026 13:00 Valgerður Árnadóttir er formaður Hvalavina. vísir/arnar halldórsson Fulltrúar Landhelgisgæslunnar munu fylgjast ferðum skipaáhafnar aðgerðasinnans Paul Watson, en skip á hans vegum er á leið til landsins í þeim tilgangi að stöðva hvalveiðar. Formaður Hvalavina styður ekki aðgerðir Watson en segir það mikil vonbrigði að atvinnuvegaráðherra hafi ekki bannað veiðarnar.
Í gær greindum við frá því að lokaundirbúningur hvalvertíðar standi yfir hjá Hval hf. en hvalbátunum tveimur, Hval 8 og Hval 9 var siglt úr Reykjavíkurhöfn og um Faxaflóa síðdegis og töldu kunnugir að verið væri að prufukeyra gufuvélarnar og stilla kompása. Valgerður Árnadóttir, formaður Hvalavina segir áformin mikil vonbrigði. „Og sérstaklega í ljósi þess að það eru ýmsar aðgerðir sem Hanna Katrín Friðriksson hefði getað farið í til að stöðva þetta auðveldlega og það eru mikil vonbrigði að hún hafi ekki gert það.“ Þá segir hún það vekja furðu að stunda megi hvalveiðar án þess að kaupandi sé fyrir afurðinni. „En það er ljóst að Kristján Loftsson hefur ekki kaupanda fyrir afurðinni. Japanir keyptu ekki af honum hvalkjöt árið 2023 og hyggjast ekki gera það núna heldur eftir því sem ég best veit og þess vegna er Kristján Loftsson að sækja um að nota hvalkjöt í dýrafóður. Watson á leiðinni Skip á vegum samtaka í nafni Paul Watson er á siglingu sinni til landsins samkvæmt færslu sem fulltrúar samtakanna rita á Facebook. Þar segir að framundan sé Operation 86 eða aðgerð 86 og og er þar vísað til þess atburðar þegar aðgerðasinnar sökktu tveimur hvalveiðiskipum árið 1986. Nú sé á dagskrá að endurtaka leikinn og binda enda á hvalveiðar Íslendinga. Styðja ekki aðgerðir Watson Valgerður tekur fram að samtökin Hvalavinir styðji ekki aðgerðir Watson. Erfitt sé að skjóta hval á miklum hraða og telur Valgerður ekki góða hugmynd að áhöfn Watson elti skipin. „Vegna þess að þá geta hvalveiðimennirnir að þeir hafi verið að trufla og þess vegna hafi skot geigað. Þetta er nógu erfitt fyrir og við viljum ekki að þeir hafi einhvern annan sökudólg en sig sjálfa. Þannig já við höfum áhyggjur af því að Paul Watson sé að koma. Þetta eru ekki aðgerðir sem við styðjum. Við teljum að íslensk stjórnvöld eigi að koma í veg fyrir hvalveiðar og hafi fullt umboð til þess.“ Ásgeir Erlendsson, samskiptastjóri Landhelgisgæslunnar segir að fylgst verði með ferðum skipsins og að gæslan muni í samvinnu við ríkislögreglustjóra bregðast við ef þörf krefur. „Við höfum haft þrjá ráðherra sem segjast ætla að stöðva þetta en hefur ekki tekist það. Þannig auðvitað missir maður vonina um að einhver stjórnmálamaður hafi einhvers konar hugrekki í sér og verður fyrir vonbrigðum í hvert sinn að þetta fái að líðast,“ segir Valgerður.
Hvalveiðar Dýr Hvalir Hótanir Paul Watson vegna hvalveiða Íslendinga Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ Skringileg túlkun að hinsegin fáninn sé útilokandi Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Óttast að þjónusta við íbúa verði lakari og dýrari í kjölfar uppsagna Tveggja til fjögurra ára börn ekki sprautuð heldur gefið í nefið Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Sjá meira