Þórdís Lóa ráðin framkvæmdastjóri Félagsbústaða Árni Sæberg skrifar 15. júní 2026 15:17 Þórdís Lóa á síðasta borgarstjórnarfundi síðustu borgarstjórnar. Vísir/Vilhelm Stjórn Félagsbústaða hf. hefur ráðið Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur í starf framkvæmdastjóra félagsins. Ákvörðun stjórnar er byggð á undangengnu mati ráðgefandi hæfnisnefndar. Niðurstaða hæfninefndarinnar var að Þórdís Lóa Þórhallsdóttir væri með afgerandi hætti talin uppfylla best þær hæfnikröfur sem settar voru fram í auglýsingu um starfið.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Þórdís Lóa búi yfir víðtækri og fjölþættri reynslu af stjórnun, stefnumótun og rekstri bæði innan opinberrar stjórnsýslu og atvinnulífs. Hún hafi frá árinu 2018 gegnt lykilhlutverkum hjá Reykjavíkurborg, meðal annars sem formaður borgarráðs og forseti borgarstjórnar. Þórdís Lóa hafi jafnframt umfangsmikla reynslu af velferðar- og félagsmálum. Árin 1997 til 2005 hafi hún starfað sem yfirmaður öldrunarþjónustu Reykjavíkurborgar og framkvæmdastjóri þjónustusviðs á velferðarsviði Reykjavíkurborgar. Að auki hafi hún starfað sem forstjóri og stjórnandi í atvinnulífinu og gegnt stjórnarformennsku og setið í stjórnum fjölmargra félaga. Þórdís Lóa sé með MBA-gráðu í rekstrarhagfræði og framhaldsnám í félagsráðgjöf og býr yfir ríkum skilningi á starfsemi sveitarfélaga og þeim hópum sem Félagsbústaðir þjóna. Í bókun stjórnar Félagsbústaða komið hafi að menntun hennar, reynsla og leiðtogahæfni falli vel að starfsemi félagsins og því mikilvæga hlutverki sem það gegni í húsnæðismálum Reykjavíkur. Félagsbústaðir hf. reki og leigi út um 3.200 íbúðir í Reykjavík og gegni lykilhlutverki í að tryggja húsnæðisöryggi íbúa. Þórdís Lóa muni hefja störf þann 10. ágúst næstkomandi. „Stjórn þakkar Sigrúnu Árnadóttur fráfarandi framkvæmdastjóra fyrir metnaðarfullt og óeigingjarnt starf í þágu félagsins undanfarin ár.“
Reykjavík Vistaskipti Viðreisn Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira