Erlent

Banda­ríkin og Íran sögð hafa náð saman um frið

Eiður Þór Árnason skrifar
Shehbaz Sharif.
Shehbaz Sharif. AP

Friðarsamkomulag hefur náðst milli Bandaríkjanna og Íran, að sögn forsætisráðherra Pakistans en ríkið hefur haft milligöngu um viðræður ríkjanna. Til standi að undirrita samninginn í Sviss föstudaginn 19. júní.

„Báðir aðilar hafa lýst yfir tafarlausri og varanlegri stöðvun hernaðaraðgerða á öllum vígstöðvum, þar á meðal í Líbanon,“ segir Shehbaz Sharif í færslu á X, áður Twitter.

„Nú þegar samkomulagið er í höfn munu sáttasemjarar greiða fyrir röð funda í þessari viku. Þessar innleiðingarviðræður munu leggja grunninn að tæknilegum viðræðum og opinberu undirritunarathöfninni.“

Wall Street Journal hafði áður haft eftir Donald Trump Bandaríkjaforseta að von væri á yfirlýsingu frá honum þar sem hann staðfesti að Bandaríkin hefðu náð samkomulagi við Íran. Fjölmiðillinn hafði ekki fengið sambærilega staðfestingu frá fulltrúum Íran. 

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×