Fólk þurfi að gæta sín þegar það leigir íbúðina út í ágúst Eiður Þór Árnason skrifar 13. júní 2026 22:39 Sævar Helgi Bragason stendur í stórræðum vegna almyrkvans í ágúst. vísir/baldur Um tveir mánuðir eru í að almyrkvi sjáist á hluta landsins. Vísindamiðlari segir þetta sögulegan viðburð sem beri að halda upp á og enginn eigi eftir að upplifa aftur. Að mörgu þurfi að huga og ekki sé sama hvenær fólk fari á salernið á þessum einstaka degi. „
Það er ekkert fegurra í heiminum þegar kemur að náttúrusýningu eins og almyrkvi á sólu,“ sagði Sævar Helgi Bragason, einnig þekktur sem Stjörnu-Sævar, í Bakaríinu á Bylgjunni. Mikilvægt sé að nota sólmyrkvagleraugu þegar fólk fylgist með tunglinu færast fyrir sólu þann 12. ágúst. Einnig þurfi að nota sérstakar sólarsíur ef teknar eru ljósmyndir eða horft í gegnum sjónauka. Klippa: Mikilvægt að vera búin að pissa fyrir kl. fimm 12. ágúst „Hún er svo óskaplega skær og getur auðvitað valdið skaða á augum ef maður fer ekki það varlega.“ Þá skipti máli að taka niður gleraugun þegar almyrkvinn sjálfur skellur á. „Rétt fyrir klukkan sex, miðvikudaginn 12. ágúst, þá þarf að taka gleraugun af það augnablik sem tunglið er alveg fyrir sólinni og horfa með berum augum. Annars sér maður ekki almyrkvann.“ Fólk boðið íbúðir sínar í skammtímaleigu Von er á fjölda skemmtiferðaskipa til landsins vegna almyrkvans og hafa sumir landsmenn leigt íbúðir sínar út til ferðamanna. „Ég vona að fólk sé spenntara fyrir þessu heldur en kannski peningalegu hliðinni því þetta er svo óskaplega fallegt. Ef fólk er að leigja út húsin sín þá bara fyrir alla muni gera það en alls ekki fara út fyrir slóðina, það eru mestu mistök sem fólk getur gert,“ segir Sævar. Vísar hann til þess hluta landsins þar sem almyrkvinn verður sjáanlegur en hann mun einungis ganga yfir Vestfirði, Snæfellsnes, höfuðborgarsvæðið og Reykjanesskaga. Utan þessarar slóðar mun einungis sjást deildarmyrkvi þar sem tunglið fer ekki alveg fyrir sólu. Hér má sjá hvernig slóð almyrkvans liggur þann 12. ágúst.Solmyrkvi2026.is „Sama hvernig viðrar þá er upplifunin inni í almyrkvaslóðinni sem gengur til dæmis yfir höfuðborgarsvæðið, svo miklu, miklu áhugaverðari heldur en nokkurn tímann 99 prósent deildarmyrkvi. Þannig ef fólk ætlar að skella sér í sumarbústað á meðan einhver gistir í húsinu þeirra, leggið leið ykkar inn í slóðina aftur og njótið bara þessarar einstöku sýningar sem þú færð ekki aftur fyrr en eftir 170 ár. Það eru algjör mistök að vera fyrir utan slóðina ef þú getur verið inni í henni.“ Sums staðar búið á örfáum sekúndum Sævar segir að sólmyrkvinn muni í heildina standa yfir í um rúmar tvær klukkustundir á flestum stöðum á landinu en almyrkvinn sjálfur sjáist í mun styttri tíma. „Bara frá örfáum sekúndum upp í tvær mínútur og þrettán sekúndur þar sem hann er lengstur. Til dæmis hér á höfuðborgarsvæðinu þá upplifir fólk almyrkvann í kringum eina mínútu. En ef fólk fer til dæmis á Snæfellsnesið eða jafnvel Reykjanesskagann þá er það svona undir eða rétt yfir tvær mínútur og það eru bara tvær gullfallegustu mínútur lífsins.“ Þá sé mikilvægt að fara ekki á salernið á röngum tíma. „Þannig ég hvet alla til þess að vera búin að fara á klósettið fyrir klukkan 17:40 þennan dag.“
Almyrkvi 12. ágúst 2026 Airbnb Bakaríið Ferðaþjónusta Mest lesið Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Tekur við Bolsonaro opnum örmum Erlent Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Innlent Helmingur atkvæða talinn og enginn með þingmeirihluta Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka Innlent Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Erlent Fleiri fréttir Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Sjá meira