Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. júní 2026 20:15 Alisson Becker missti af mörgum leikjum Liverpool á nýloknu tímabili vegna meiðsla. Getty/Liverpool FC/ Alisson Becker segist vera hundrað prósent klár í slaginn með brasilíska landsliðinu á heimsmeistaramótinu í fótbolta þrátt fyrir að hafa misst af mörgum leikjum með Liverpool á nýloknu tímabili.
Alisson var spurður út í tímabilið sitt hjá Liverpool sem og um gagnrýni og bata eftir meiðslin. Titilvörn Liverpool gekk hræðilega sem endaði með því að knattspyrnustjórinn Arne Slot var rekinn. „Það eru enn spurningar, en það veldur mér ekki áhyggjum. Ég veit að ég er á réttri leið. Stundum, inni á vellinum, fara hlutirnir ekki eins og við viljum. Ef við hefðum unnið meira væri viðhorfið kannski annað,“ sagði Alisson Becker í viðtali við brasilíska blaðið Estadao. „Það sem truflar mig mest er að hafa ekki unnið. Það er alltaf þessi tilfinning að ég hefði getað gert eitthvað öðruvísi,“ sagði Alisson en það er annað svar hans sem fór fyrir brjóstið á mörgum stuðningsmönnum Liverpool. Alisson glímdi við mörg tognunarvandamál í læri á síðasta tímabili sem náðu hámarki með því að hann missti af sjö af síðustu átta leikjum Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur nú hins vegar útskýrt að sumar þessara fjarvista hafi verið með komandi heimsmeistaramót í huga. „Ég er hundrað prósent heill. Að missa af leikjum með Liverpool var hluti af áætluninni til að tryggja að ég yrði klár fyrir heimsmeistaramótið,“ sagði Alisson. Alisson fékk á sig 31 mark í 26 leikjum með Liverpool í ensku úrvalsdeildinni og hélt átta sinnum hreinu. Varamaður hans Giorgi Mamardashvili fékk á sig 18 mörk í 10 deildarleikjum og hélt 2 sinnum hreinu. View this post on Instagram A post shared by Liverpool Goals (Fanpage) 🏆 (@liverpoolgoals)
Enski boltinn HM 2026 í fótbolta Liverpool FC Mest lesið Aston Villa í mál við Jamie Carragher Enski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Enski boltinn Styttan af Dwyane Wade fékk nýjan haus Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti „Þessi seinni hálfleikur var það besta sem við höfum gert hingað til” Körfubolti „Lið sem enginn vill mæta núna“ Körfubolti Réttlætanlegt að beita táragasi á norska stuðningsmannahópa Fótbolti Uppgjörið: KR - Sindri 107-102 | Seiglan sigraði Sindra Körfubolti Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira