„Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Áróra L Davíðsdóttir skrifar 13. júní 2026 10:58 Færeyska varðskipið Brimil kom Barða, skipi Síldarvinnslunnar, til aðstoðar eftir að eldur kviknaði um borð í gær. Aðsend Skipstjóri á Barða, skipi Síldarvinnslunnar, segir ítrekaðar æfingar um borð lífsnauðsynlegar og þær hafi skilað sér eins og best var á kosið í gær þegar eldur kom upp um borð. Stór og mikill eldur hafi blossað upp í vélarrúmi skipsins og reykur hafi fyllt afturskipið á örskotsstundu.
Eldur kom upp í vélarrúmi Barða NK 120, skips út fyrir ströndum Færeyja í gær og skipið rak vélarvana í rúma þrjá klukkutíma þangað til að færeyskt varðskip kom til bjargar. Teódór Elvar Haraldsson skipstjóri á Barða segir að öllu máli hafi skipt að enginn hafi verið í vélarrúminu þegar eldurinn kviknaði. Hann segir svona átök vera upp á líf og dauða. „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta.“ Ekki er enn komið í ljós nákvæmlega hvað skeði en hann segir allt benda til þess að eldsneytislögn hafi farið í sundur. Það hafi blossað upp stór og mikil eldsprenging og vélarrúmið hafi orðið alelda á svipstundu. Teódór segir áhöfnina hafa verið duglega að sinna eldvarnar- og brunaæfingum um borð og það hafi svo sannarlega skilað sér í gær. Áhöfnin hafi verið fljót að kæfa eldinn en tjónið sé þó töluvert. „Það varð engum meint af en þetta voru náttúrulega mikil átök og stress á meðan á þessu stóð.“ Færeyska björgunarmiðstöðin í Þórshöfn staðfestir í samtali við Vísi að þeim hafi borist neyðarkall frá Barða skömmu fyrir klukkan þrjú í gær. Skipið var þá statt um 15 sjómílum norðan af Færeyjum. Hann sjálfur hafi strax kallað eftir neyðaraðstoð. Skipið hafi verið tekið í tog um kvöldmatarleytið og þeir hafi komið í höfn í Færeyjum í morgun, tólf tímum seinna. Teódór segir alla áhöfnina dauðfegna að komast á hótel og hvíla sig eftir átökin.
Færeyjar Síldarvinnslan Sjávarútvegur Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Innlent Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Innlent Fleiri fréttir Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Sjá meira