Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Kjartan Kjartansson skrifar 11. júní 2026 11:34 Maður kælir sig með vatnsúða í hitabylgju í París. Sérstakar kælistöðvar eru á meðal þess sem Alþjóðaheilbrigðisstofnunin leggur til að yfirvöld geti gert til þess að koma í veg fyrir dauðsföll og veikindi af völdum öfgahita í Evrópu. Vísir/EPA Rúmlega tvö hundruð þúsund manns hafa látist af völdum hita í Evrópu á undanförnum fjórum árum samkvæmt Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Hún telur að hægt hefði verið að koma í veg fyrir flest andlátanna.
Til viðbótar við þá sem týndu lífi hafa milljónir Evrópubúa þjáðst líkamlega og andlega af völdum hitabylgja á síðustu árum. Henri Kluge, yfirmaður Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í Evrópu, segir öfgahita hættulegustu og mest aðsteðjandi hættuna af völdum loftslagsbreytinga. Stofnunin kynnti í dag ráðgjöf sína um hvernig eigi að vernda mannslíf fyrir öfgahita. Einstaklingum er þar ráðlagt að halda sig úr hitanum, kæla heimili sín og vökva sig. Kruge segir það ekki duga eitt og sér heldur þurfi kröfugar aðgerðir stofnana til þess að bregðast við kerfislægum vandanum. Kruge hvetur evrópsk stjórnvöld til þess að búa til áætlanir gegn áhrifum hitabylgja á heilsu fólks. Slíkar áætlanir geti bjargað mannslífum. Á meðal aðgerða sem WHO nefnir er að bjóða upp á græn svæði með forsælu og sérstök kælisvæði í borgum. Félagsþjónusta geti fylgt því eftir að eldra fólk drekki nægan vökva og kennarar og leikskólakennarar geti lært að þekkja einkenni veikinda sem tengjast hita. Einnig megi koma á vinnuhléum eða sveigjanlegum vöktum til þess að verkamenn þurfi ekki að strita úti í sólinni yfir heitasta tíma dagsins.
Loftslagsmál Heilbrigðismál Sameinuðu þjóðirnar Tengdar fréttir Hitamet í maí slegið í Bretlandi Hitinn náði þrjátíu og fjórum gráðum á selsíus fyrr í dag við Heathrow í nágrenni Lundúna. Er það hæsta hitastig sem mælst hefur í maímánuði í sögu Bretlands. 25. maí 2026 16:23 Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni Árið í fyrra var það þriðja hlýjasta frá upphafi mælinga og undanfarin ellefu ár eru þau ellefu hlýjustu sem um getur. Meðalhitinn í fyrra slagaði hátt í neðri mörk Parísarsamkomulagsins. 14. janúar 2026 14:10 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga. Meðalhiti í byggðum landsins var 5,2 stig sem er 1,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og hefur aldrei verið hærri. Áður var árið 2014 hlýjasta árið á landsvísu. 2. janúar 2026 16:41 Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga Sjá meira
Hitamet í maí slegið í Bretlandi Hitinn náði þrjátíu og fjórum gráðum á selsíus fyrr í dag við Heathrow í nágrenni Lundúna. Er það hæsta hitastig sem mælst hefur í maímánuði í sögu Bretlands. 25. maí 2026 16:23
Síðustu ellefu ár þau hlýjustu í mælingasögunni Árið í fyrra var það þriðja hlýjasta frá upphafi mælinga og undanfarin ellefu ár eru þau ellefu hlýjustu sem um getur. Meðalhitinn í fyrra slagaði hátt í neðri mörk Parísarsamkomulagsins. 14. janúar 2026 14:10
2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga Árið 2025 var hlýjasta árið á Íslandi frá upphafi mælinga. Meðalhiti í byggðum landsins var 5,2 stig sem er 1,1 stigi yfir meðallagi áranna 1991 til 2020 og hefur aldrei verið hærri. Áður var árið 2014 hlýjasta árið á landsvísu. 2. janúar 2026 16:41