Erlent

Rann­saka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka for­eldra fyrir að sitja með börnum sínum

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Hjá Ryanair gjalda foreldrar sérstaklega fyrir þá reglu að börn eigi að fljúga í fylgd fullorðins einstaklings.
Hjá Ryanair gjalda foreldrar sérstaklega fyrir þá reglu að börn eigi að fljúga í fylgd fullorðins einstaklings. Getty/Xavier

Breska samkeppniseftirlitið (CMA) hefur hafið rannsókn á gjaldtöku Ryanair. Málið varðar reglu flugfélagsins sem skyldar foreldra til að bóka sæti við hlið barns eða barna sinna á aldrinum tveggja til ellefu ára og rukkar fyrir sætið.

Ryanair er sagt vera eina flugfélagið sem flýgur til og frá Bretlandseyjum sem hagar reglum sínum og gjaldtöku með þessum hætti. Önnur flugfélög ýmist rukka ekki fyrir það að finna foreldrum og börnum sæti saman eða setja foreldra og börn sjálfkrafa hlið við hlið þegar bókað er, án þess að taka fyrir það gjald.

Hjá Ryanair geta allir farþegar valið um það hvort þeir bóka ákveðið sæti, og greiða fyrir það gjald, nema foreldar. Þeir eru skikkaðir til þess að sitja hjá börnum sínum og borga fyrir það.

Gjaldið nemur á bilinu fjórum til tólf pundum en er oftast átta pund.

Rannsókn málsins snýr meðal annars að því hvort það samræmist neytendalögum að láta foreldra gjalda sérstaklega fyrir kröfur flugmálayfirvalda um að börn séu ekki eftirlitslaus í flugi. 

Þá er einnig til rannsóknar hvort innheimta gjaldsins sé nógu gagnsæ í bókunarferlinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×