Umdeild brottfararstöð leidd í lög Árni Sæberg skrifar 9. júní 2026 16:08 Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir er dómsmálaráðherra. Vísir/ÍVar Fannar Umdeilt frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð er orðið að lögum. Í brottfararstöð munu útlendingar geta sætt frelsissviptingu vegna ákvörðunar um að þeir skuli yfirgefa landið eða meðan mál sem getur leitt til slíkrar ákvörðunar er til meðferðar. Fjöldi mannúðarsamtaka hefur gagnrýnt frumvarpið, sér í lagi vegna þess að það heimilar frelsissviptingu barna. Slíkri frelsissviptingu eru þó settar þröngar skorður.
Þrátt fyrir talverða gagnrýni á frumvarpið frá hinum ýmsu hagsmunasamtökum var nokkuð breið samstaða um það á Alþingi og stjórnarandstaðan lagðist ekki gegn því. Frumvarpið var samþykkt með 42 atkvæðum en tíu þingmenn greiddu ekki atkvæði. Þingmenn Miðflokks og Framsóknar sátu ýmist hjá eða voru ekki viðstaddir. Nokkuð var um fjarveru þingmanna stjórnarflokkanna en 52 af 63 þingmönnum voru viðstaddir. Fagnaði sinnaskiptum Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, sagði til að mynda í umræðu um atkvæðagreiðsluna að hann fagnaði sinnaskiptum ríkisstjórnarflokkanna vegna málsins. Þar vísaði hann meðal annars til Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, formanns Viðreisnar og utanríkisráðherra, sem sagði fyrir tveimur árum að flokkur hennar myndi aldrei setja börn í lokuð búsetuúrræði. Þá sagði Guðrún Hafsteinsdóttur, formaður Sjálfstæðisflokksins, að flokkurinn styddi frumvarpið, þrátt fyrir að hann hefði viljað sjá nokkrar breytingar gerðar á frumvarpinu, sem meiri hlutinn hafnaði. Þingmenn Miðflokksins sátu hjá í atkvæðagreiðslunni en Snorri Másson, varaformaður flokksins, sagði að með því væri flokkurinn ekki að setja sig upp á móti frumvarpinu heldur gera pólitíska athugasemd um það. Þannig teldi Miðflokkurinn að brottfararstöð ætti að vera óþörf ef gerðar væru nauðsynlegar breytingar á málefnum útlendinga. Lögreglan á Suðurnesjum mun reka stöðuna Samkvæmt upplýsingum um frumvarpið á vef Alþingis segir að markmið þess sé meðal annars að uppfylla Schengen-skuldbindingar Íslands, einkum samkvæmt brottvísunartilskipuninni og skimunarreglugerðinni, og að horfið verði frá vistun útlendinga í fangelsi í þessum tilvikum. Lagt sé til að lögreglustjórinn á Suðurnesjum beri ábyrgð á rekstri brottfararstöðvar, ráði starfsfólk og ákveði hvar útlendingur skuli vistaður. Kveðið sé á um upphaf vistunar, skráningu upplýsinga, heilsufarsskoðun, rétt til samskipta við lögmann og aðra, heilbrigðisþjónustu, vistarverur, útiveru, tómstundir og aðbúnað, með sérstakri áherslu á einstaklinga í viðkvæmri stöðu. Í frumvarpinu sé jafnframt gert ráð fyrir reglum um takmarkanir á réttindum, líkamsleit og leit í vistarverum, valdbeitingu, agabrot, agaviðurlög, aðskilnað, öryggisklefa, haldlagningu og kæruheimildir. Sérreglur um börn Gert sé ráð fyrir að sérreglur gildi um börn og að vistun barns með fjölskyldu sinni verði aðeins heimil þegar brýna nauðsyn ber til, sem síðasta úrræði og í mjög skamman tíma. Þá sé lagt til að fylgdarlaus börn verði ekki vistuð á brottfararstöð og að óheimilt verði að beita agaviðurlögum gagnvart börnum eða valdbeitingartækjum þegar barn á í hlut. Með frumvarpinu séu innleiddar tvær Evrópugerðir á sviði Schengen-samstarfsins, tilskipun um endursendingu ríkisborgara þriðju ríkja sem dvelja ólöglega í aðildarríkjum og reglugerð um skimun ríkisborgara þriðju ríkja á ytri landamærum. Hálfur milljarður á ári Þá segir að í frumvarpi til fjárlaga fyrir árið 2026 sé gert ráð fyrir árlegu rekstrarframlagi til brottfararstöðvar að fjárhæð 500 milljónir króna. Gert sé ráð fyrir einskiptiskostnaði vegna breytinga á húsnæði en sá kostnaður sé ekki fjármagnaður sérstaklega og ekki styrkhæfur úr landamærasjóði.
Brottfararstöð fyrir útlendinga Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Viðreisn Innflytjendamál Hælisleitendur Alþingi Tengdar fréttir Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir það mikil mistök verði frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð á landamærum að lögum. Engar breytingar hafi orðið á stöðu barna við meðferð málsins í nefnd. Tvö ár eru síðan formaður Viðreisnar sagði að flokkurinn myndi aldrei setja börn í lokuð búsetuúrræði. 6. júní 2026 12:28 „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Framkvæmdastjóri Barnaheilla gagnrýnir stjórnvöld fyrir að veita heimild til að frelsissvipta börn í sérstakri brottfararstöð vegna gjörða foreldra þeirra. Þingmaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld reyna að gera gott úr erfiðri stöðu. Hann vonar að úrræðið verði aldrei nýtt. 8. júní 2026 19:50 Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Sögðust ekki ætla að setja börn í lokað búsetuúrræði en nú er tónninn annar Framkvæmdastjóri Barnaheilla segir það mikil mistök verði frumvarp dómsmálaráðherra um brottfararstöð á landamærum að lögum. Engar breytingar hafi orðið á stöðu barna við meðferð málsins í nefnd. Tvö ár eru síðan formaður Viðreisnar sagði að flokkurinn myndi aldrei setja börn í lokuð búsetuúrræði. 6. júní 2026 12:28
„Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Framkvæmdastjóri Barnaheilla gagnrýnir stjórnvöld fyrir að veita heimild til að frelsissvipta börn í sérstakri brottfararstöð vegna gjörða foreldra þeirra. Þingmaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld reyna að gera gott úr erfiðri stöðu. Hann vonar að úrræðið verði aldrei nýtt. 8. júní 2026 19:50