Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. júní 2026 10:03 Norsku landsliðsmennirnir Jørgen Strand Larsen, Leo Skiri Østigård og Sander Berge á Víkingamyndatöku norska landsliðsins. @herrelandslaget Norska karlalandsliðið í fótbolta mætir á sitt fyrsta heimsmeistaramót í sannkölluðum víkingaham. Landsliðið sækir innblástur í víkingaskip, stafkirkjur og rúnir en það eru ekki allir hrifnir.
Búningarnir eru með rúnaletri, stuðningsmennirnir róa undir Víkingaklappinu og leikmenn voru klæddir eins og víkingar í kynningarefni fyrir mótið. „Mér finnst þetta útlit einfaldlega alveg hrikalega hallærislegt,“ sagði Markus Slettholm, dálkahöfundur hjá Morgenbladet, við norska ríkisútvarpið. Hann er ekki einn um að bregðast við því hvernig landsliðið kynnir sig fyrir HM. Aðeins útlendingar geta trúað henni „Þetta er Andabæjarútgáfa af norskri menningu sem mér finnst svo ótrúverðug að aðeins útlendingar geta trúað henni,“ sagði Slettholm. View this post on Instagram A post shared by Herrelandslaget (@herrelandslaget) „Það er auðvitað eitthvað afturhaldssamt við það að horfa þúsund ár aftur í tímann til þess tíma þegar Norðmenn voru ræningjaþjóð sem fór og rændi og nauðgaði í Skotlandi,“ sagði Slettholm. Að norræn tákn hafi verið notuð af nýnasistum og hægriöfgahópum á síðari árum telur hann þó ekki vera vandamálið. „Þar er hægt að færa rök fyrir því að maður sé að endurheimta þau. En það er ljóst að þetta minnir svolítið á það sem nýnasistar höfðu áhuga á fyrir tíu árum,“ sagði Slettholm. „Mér finnst þetta alveg dásamlegt“ Hálfíslenski þingmaðurinn Kristján Mímir Kristjánsson er aftur á móti hrifinn og er meðal þeirra sem verja landsliðið. „Mér finnst þetta alveg dásamlegt,“ sagði Mímir. „Þetta er HM í fótbolta þar sem menningarheimar alls staðar að úr heiminum munu mætast. Þá verður Noregur að koma með sína eigin menningu til að fjölbreytileikinn virki,“ sagði Mímir. View this post on Instagram A post shared by Herrelandslaget (@herrelandslaget) Meðal gagnrýninnar er að táknin hafi áður verið notuð af hægriöfgamönnum og finnst þingmanninum ekki góð ástæða til að láta vera að nota þau. Víkingaöldina tengd við nasisma og hægriöfgar „Nei, ég er orðinn hundþreyttur á því að fólk tengi víkingaöldina og hið norræna við nasisma og hægriöfgar,“ sagði Mímir sem segir það alveg rétt að nasistar hafi reynt að stela bæði rúnum og norrænum táknum í marga áratugi. „En norræna menningin er söguleg menning Norðurlanda. Nasistar eiga hvorki Þór, Óðin, Rúnir né Valhöll. Við verðum að endurheimta það frá þeim og þá finnst mér landsliðið ganga á undan með mjög góðu fordæmi,“ sagði Mímir. Þótt tilvísanirnar í víkingaöldina séu klisjur telur stjórnmálamaðurinn að þær séu til þess að vera notaðar. „Þegar maður ætlar að sameina alla þjóðina á bak við landslið þá verður það svolítið klisjukennt. Þá er ekki hægt að fá einhverja móderníska listamenn til að búa til menningartjáningu, sko. Það gengur ekki,“ sagði Mímir.
HM 2026 í fótbolta Noregur Mest lesið Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Fótbolti Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Fótbolti United aldrei í vandræðum Fótbolti „Pirraðastur er ég yfir þessum tíu lokamínútum“ Handbolti Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Körfubolti Þórsarar komnir á blað Handbolti Kanalausir Eyjamenn unnu Suðurlandsslaginn Handbolti Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag Fótbolti Uppgjörið: Afturelding - FH 33-33 | Allt jafnt eftir háspennuleik Handbolti Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Enski boltinn Fleiri fréttir Infantino hylmi yfir fjárdrátt Eto'o fyrir stuðning Vandræðalegasta viðtal sögunnar? Hætti strax eftir leik en forsetinn hafnar uppsögninni Lumbrað á Norðmönnum og dramatík í Prag United aldrei í vandræðum Jólahátíðin snýr aftur á Englandi Bakverðir til bjargar Frakkar vilja Infantino burt Tvö íslensk hæfileikabúnt til Molde Góður gangur í viðræðum Arsenal og Arteta „Vona að það verði enginn munur á vellinum“ Fullkomin frumraun Ídu sem sló í gegn með þrennu Góðar og slæmar fréttir fyrir íslensku liðin sem ætla í Evrópudeildina Á ekki að snúast um karla gegn konum Stjórn Como gefur frá sér sína miða Dómur gæti hafa verið kveðinn upp í máli Manchester City Nýr Camp Nou míglekur Sjáðu tvær þrennur og glæsilegt sigurmark Ødegaard Pochettino segir að Englandsmeistaratitillinn ætti að vera dæmdur af Chelsea Pressa á Blikum og skipulagið gagnrýnt Dagur Dan kom markmanninum í klandur „Gríðarleg vonbrigði“ Víkinga en stór áfangi í augsýn Dagskráin í dag: Manchester United snýr aftur í Meistaradeildina Harmsaga Mudryk heldur áfram Þessir dómarar dæma bikarúrslitin Dramatískt sigurmark lærisveina Heimis í umspilinu Stjörnur Chelsea tóku yfir í níu marka leik Evrópumeistararnir hófu titilvörn sína með pomp og prakt Þrumufleygur Ødegaard tryggði Arsenal sigur gegn Napoli Sá svekkti tryggði Liverpool sigur Sjá meira