Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 4. júní 2026 16:28 Ali er eftirlýstur af Europol og Interpol. Skjáskot Rannsóknardeild lögreglunnar í Noregi, Kripos, hefur ákært sænskan mann sem hún telur vera einn höfuðpaura Foxtrot-glæpasamtakanna alræmdu. Hann er sagður gegna lykilhlutverki sem milliliður við skipulagningu ofbeldisverka í ýmsum löndum.
Maðurinn er 21 árs og heitir Ali Namdar. „Við teljum að hann gegni lykilhlutverki í Foxtrot og hann er talinn vera mikilvægur fyrir skipulag glæpasamtakanna, sérstaklega varðandi skipulagningu ofbeldisverka,“ hefur Verdens gang eftir Önju Perminow Stenersen hjá Kripos. „Hann hefur verið bendlaður við sprengjuárásina í Pilestredet sem átti sér stað í september 2025,“ bætir hún við. Mansal og skotárásir Hann er einnig ákærður fyrir fjölda annarra brota sem varðar skipulagningu ofbeldisverka, þar á meðal skotárásir í Sarpsborg í Austurfold og Høybråten, úthverfi Óslóar. Í þessum tveimur málum er hann talinn hafa unnið með norskum manni sem var handtekinn í Hollandi síðastliðið haust. Ákæran snýr að tilraunum til samsæris þar sem lögregla hefur ekki upplýsingar um að neinn hafi tekið að sér téð ofbeldisverk eða að þau hafi verið framkvæmd. Talið er að maðurinn hafi reynt að þvinga fólk í viðkvæmri stöðu til að framkvæma ofbeldisverk. Samkvæmt umfjöllun Verdens gang getur slíkt talist nauðungarvinna sem fellur undir ákvæði norskra hegningarlaga um mansal. „Þetta er einstaklingur sem við teljum að sé erlendis og skipuleggi alvarleg ofbeldisverk sem eru alvarleg ógn við öryggi í Noregi. Hann hefur notað börn og ungmenni til að framkvæma ofbeldisverkin,“ er haft eftir Stenersen. Kúrdíski refurinn enn sagður í Íran Foxtrot-gengið hefur í nokkur ár verið mjög umsvifamikið í Svíþjóð og er gjarnan bendlað við ofbeldisverk þar í landi. Samtökin eru sögð spila stóra rullu í flutningi fíkniefna til Svíþjóðar og annarra ríkja í Evrópu, auk þess sem þau eru sögð smygla skotvopnum. Samtökin hafa verið leidd af manni af kúrdískum uppruna sem heitir Rawa Majid. Sá er kallaður Kúrdíski refurinn og hefur stýrt Foxtrot frá Tyrklandi. Hann er nú talinn í Íran en þar átti hann að hafa verið handtekinn árið 2023.
Noregur Svíþjóð Erlend sakamál Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Fleiri fréttir Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Sjá meira