Enn eitt sjokkið í París: „Ég vil bara hætta í tennis núna“ Sindri Sverrisson skrifar 3. júní 2026 16:46 Aryna Sabalenka leyndi ekki vonbrigðum sínum á Roland Garros vellinum í París í dag. Getty/Ian MacNicol Óvæntu úrslitin hafa hrannast inn á Opna franska mótinu í tennis og sú þróun hélt áfram í dag þegar Aryna Sabalenka, efsta kona heimslistans, féll út í 8-manna úrslitum eftir tap gegn Diönu Shnaider.
Sabalenka var í öngum sínum eftir tapið og sagðist einfaldlega vilja hætta að spila tennis. Hún komst í úrslit í fyrra og vann fyrsta settið gegn Shnaider í dag 6-3 auk þess að komast í 4-1 í næsta setti. Þá fjaraði hins vegar undan og Shnaider vann 12 af síðustu 13 lotunum og leikinn þar með 3-6, 7-5, 6-0. Sabalenka var sú eina sem eftir stóð á mótinu með reynslu af því að vinna risamót en núna er Mirra Andreeva, sem situr í 8. sæti heimslistans, sigurstranglegust. "No thoughts, no emotions. Just want to quit tennis right now..." Aryna Sabalenka after her loss to No. 25 Diana Shnaider 💔 #RolandGarros pic.twitter.com/C87w8mf6XM— TNT Sports U.S. (@TNTSportsUS) June 3, 2026 Shnaider er aðeins í 25. sæti heimslistans og vonbrigði Sabalenka leyndu sér ekki eftir tapið: „Engar hugsanir. Engar tilfinningar. Ég vil bara hætta í tennis núna… Við sjáum til eftir nokkra daga. Vonandi næ ég mér aftur á strik, andlega,“ sagði Sabalenka eins og sjá má hér að ofan. Shnaider kvaðst sjálf hreinlega orðlaus eftir sigurinn. „Hún er númer eitt í heiminum svo ég var bara að reyna að gera mitt besta. Ég þurfti að berjast fyrir hverju einasta stigi,“ sagði Shnaider. Hún mætir hinni pólsku Maju Chwalinska í undanúrslitum á morgun en Andreeva mætir Mörtu Kostyuk frá Úkraínu.
Tennis Tengdar fréttir Öskubuskuævintýri í gangi í París Pólska tenniskonan Maja Chwalinska hélt áfram sínu ótrúlega öskubuskuævintýri á Opna franska meistaramótinu í tennis í dag með því að vinna Önnu Kalinskaja á leið sinni í undanúrslit í París. 3. júní 2026 13:46 Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Breytingar boðaðar í Garðabæ Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Íslenski boltinn Biður kínversku þjóðina afsökunar Fótbolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Fleiri fréttir Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Dagskráin í dag: Bónus-deildin, Extraleikar, Lokasóknin og Arsenal Kane og Putellas hlutu Gullboltann Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Spánn á bestu þjálfarana Barcelona á bæði bestu ungstirnin Viktor nálægt sigurmarki en FCK gefur eftir Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Ringulreið á Ballon d'Or: Birtu fréttir um sigurvegara áður en hátíðin hófst „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Spila til að vinna deildina, ekki Barcelona Sjá meira
Öskubuskuævintýri í gangi í París Pólska tenniskonan Maja Chwalinska hélt áfram sínu ótrúlega öskubuskuævintýri á Opna franska meistaramótinu í tennis í dag með því að vinna Önnu Kalinskaja á leið sinni í undanúrslit í París. 3. júní 2026 13:46