Félagsleg heilsa ræsisrottnanna Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar 3. júní 2026 08:31 Lífið er alls konar, en sumir verða meira fyrir barðinu á lífinu en aðrir. Þetta á t.d. við um öryrkja, þ.e. fatlað fólk og fólk með langvinna sjúkdóma og jafnvel ævilanga. Það er „þetta“ fólk sem hefur verið í umræðunni undanfarnar vikur og mánuði og umræðan hefur verið neikvæð, m.a. í kringum tengingu launavísitölu við lífeyri öryrkja (og reyndar einnig ellilífeyristaka). Fjölmargir settu sig upp á móti þessari lífskjarabót öryrkja og sumir töldu hana setja ríkið sjálft á hausinn. Jafnvel læknar settu sig upp á móti þessari kjarabót skjólstæðinga sinna og sendi Læknafélag Íslands ályktun þess efnis og áhyggjur. Oddur Ingimarsson geðlæknir, lektor við Háskóla Íslands og viðskiptafræðingur fór mikinn en það síðastnefnda hefur það áreiðanlega gefið andmælendum hinnar pólitísku stefnuskrár ríkisstjórnarinnar byr undir báða vængi. Hvernig getur læknir og viðskiptafræðingur í einum og sama manninum haft rangt fyrir sér? Viðskiptaráð Íslands hefur tekið undir þessa orðræðu og í fjölmiðlum hefur verið fjallað um meinta fjölgun öryrkja og þá miklu fjárhagslegu byrði sem þeir eru ríkinu og þá um leið skattborgurum þessa lands. Huggulegt eða hvað? Og hvað gerðu öryrkjar undir þessum árásum. Gátu þeir fagnað þessari kjarabót? Án efa en samt, einu sinni enn, voru þeir hraktir út í horn eða kusu að ganga með fram veggjum. Þeir sögðu eða hugsuðu „ég er öryrki. Ég fagna þessari kjarabót en fyrirgefið, ég skammast mín samt.“ Enginn vill hafa öryrkja sem nágranna Flestir öryrkjar skammast sín fyrir „stöðu“ sína í lífinu, örlögum sem þeir hafa sjaldnast haft nokkurt val um eða bera ábyrgð á. Sjúkdómar og slys gera ekki boð á undan sér, sem og ekki ef fötlunin er meðfædd. Ef fötlunin eða sjúkdómurinn er ekki þeim mun sýnilegri er oft reynt að láta ekki á neinu bera. Við skulum einnig hafa í huga að fjórir af hverjum tíu öryrkjum eru með geðrænar áskoranir. Og við vitum nú hvernig hefur gengið að opna sambýli fyrir þann hóp. Enginn vill hafa hann sem nágranna. „Þetta er þarft málefni en bara ekki í mínu hverfi.“ Ég held að fáir öryrkjar svari þeirri víðfrægu spurningu: Hvað gerir þú“ með svarinu: „Ég er öryrki,“ enda á það aðeins að vera eitt af því sem skilgreinir manneskju. Flestir reyna að fela það, það er mín reynsla. Enda viljum við öll falla í hópinn. Vera bara svona „venjuleg.“ En sumir verða fyrir barðinu á lífinu. Flestir öryrkjar hafa gert það og ég minni á að við erum að tala um fatlað fólk og fólk sem glímir við langvinna sjúkdóma. Þeir eiga oft erfiðara með að brosa inn í kjarnann en aðrir, því margar hindranir standa í vegi fyrir þeim. En miskiljið mig ekki, öryrkjar geta brosað, en félagsleg heilsa þeirra er sjaldnast mjög góð. Þetta hefur m.a. komið fram í rannsóknum hér á landi. Hér er vísað til rannsóknar Vörðu rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins, sem unnin var í samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök og kom út í desember 2023. Ekkert gefur til kynna að þær niðurstöður hafi breyst. Slæm félagsleg heilsa og mikil einagrun í samfélaginu Almennt er félagsleg heilsa léleg hjá öryrkjum, hvort sem þeir eru á örorkulífeyri, endurhæfingalífeyri eða örorkustyrk. Almennt má segja að þeir búi við mikla félagslega einangrun en rannsóknin byggði á sjálfsmati öryrkja. Rúmlega helmingur sagði félagslega einangrun sína mjög eða frekar mikla. Hæst er hlutfallið meðal fólks í yngsta aldurshópnum, 30 ára og yngri, sem upplifir mjög eða frekar mikla félagslega einangrun (65,1%) og sérstaklega hjá ungum konum (70%). Þetta eru alvarleg tíðindi. Breytingar á örorkulífeyriskerfinu sem tóku gildi 1. september á 2025 áttu að hvetja öryrkja til að sækja sér tekjur á vinnumarkaði en samhliða var dregið úr tekjutengingu lífeyrisins. Þetta átti m.a. að draga úr félagslegri einangrun öryrkja. Í áðurnefndri könnun segist ríflega helmingur finna fyrir mjög miklum eða frekar miklum fordómum í atvinnuleit (55,4%). Það er ekki sérlega uppörvandi að sækja um vinnu í slíku árferði. Úræði Vinnumálastofnunnar sem áttu að hjálpa fötluðum að fá vinnu hefur reynst máttlaust. Öryrkjar Íslands finna fyrir fordómum og félaglegri einangrun Og fordómarnir er víðar. Rúmlega helmingur öryrkja hefur fordóma í eigin garð (51,9%) og tæplega helmingur finnur fyrir fordómum almennt í samfélaginu (47,1%). Ríflega fjórðungur finnur fyrir mjög miklum eða frekar miklum fordómum í heilbrigðiskerfinu (28,6%), í námi (28,1%) og á vinnustað (26,1%). Tæplega fjórðungur finnur fyrir fordómum meðal vina (24,7%), hjá þjónustuaðilum (22,4%) og innan fjölskyldunnar (22,1%). Ég fylgist með hópi á fésbókinni sem nefnist Öryrkjar Íslands. Þetta er vettvangur fyrir öryrkja til að leita ráða við ýmsum vanda, sérstaklega samskiptum við kerfið, tjá tilfinningar sínar eins og reiði. En þarna má líka greina örvæntingu og örmögnun ekki síst vegna þess hversu tekjur þeirra eru lágar, að þeir ná ekki endum saman og eigi því erfitt með að taka þátt í því sem virðist sjálfsagt í samfélaginu. Það er enn einn vinkill félagslegrar einangrunar og uppspretta fordóma. Ég reiðist – þess vegna er ég Allt þetta hefur áhrif á bæði andlega og félagslega heilsu öryrkja. Þeir geta ekki verið stoltir af því að vera fyrst og fremst manneskja. Þeir sem hafa uppi þann gamla, staglandi áróður um að öryrkjar hafi það svo gott, geta varla hafa orðið fyrir barðinu á lífinu. Og að læknar, sem fatlað fólk og fólk með langvinna sjúkdóma treystir, skuli bregðast skjólstæðingum sínum svo illa sem raun ber vitni er svívirða. Síðan er það nú annað, hverjir skrifa út örorkuvottorðin? Ræsisrotturnar sem nefndar eru í titli þessarar greinar, er fengið úr hópi grúppunnar Öryrkjar Íslands. „Við erum bara ræsisrottur í þeirra augum.“ Þetta stakk mig. Var það virkilega svo? Erum við ekki meira en það? En þessi eina setning sagði meira en doðrantur af orðum. Í henni fólst félagsleg heilsa og einangrun fatlaðra, hvort sem fötlunin er sýnileg eða ekki. Samfélagið allt þarf að girða sig í brók. Fögnum fjölbreytileikanum og tökum utan um ræsisrotturnar því öryrkjar eiga ekki að upplifa sig sem slíkar. Sýnum samkennd, skilning og kærleika. Öryrkjar þurfa á því að halda. Öryrkjar þurfa á þér að halda! Höfundur er kennari, blaðamaður og öryrki. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tenging almannatrygginga við launavísitölu Sjúkratryggingar Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Loftbrúin fjarlægist skosku leiðina Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar Skoðun Þingmaðurinn sem ruglaði saman gagnrýni og andstöðu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Að segja satt frá og gera það strax! Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar Skoðun Takk fyrir, ferðamaður! Björgvin Jóhannesson skrifar Skoðun Sérstaða Íslands: forskot eða fjötur um fót? Hugrún Elvarsdóttir skrifar Skoðun Í framlínu náttúruverndar í 50 ár Magnús Hallur Jónsson skrifar Skoðun Frumkvöðull snýst gegn eigin hugmyndum Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar Skoðun Viðreisn einfaldar regluverk og minnkar báknið Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun Kvittanirnar segja meira en pólitískar fyrirsagnir Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Nú er komið að þér, Kristrún! Svanur Már Snorrason skrifar Skoðun Hefði Evrópa getað keypt sigur á Rússum fyrir tveimur árum?! Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Það er dýrt að hafa lítið val Svanfríður Bergvinsdóttir,Andri Ólafsson skrifar Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar Skoðun Nýr einkunnakvarði er aðeins hluti af sögunni Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Sjá meira
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Skoðun Norðurlönd gætu misst Grænland og Færeyjar ef endurskoðun Helsingforssamningsins dregst á langinn Maiken Poulsen Englund,Lars Barfoed,Torbjörn Nyström,Sara Fleischer,Hrannar Björn Arnarsson skrifar
Skoðun Um traust, ábyrgð og fagmennsku í listsamkeppnum Markús Þór Andrésson,Anna Rún Tryggvadóttir skrifar
Skoðun Árangur LEB er ótvíræður – en fátækt eldri borgara er þjóðarskömm Björn Snæbjörnsson skrifar
Skoðun Ofbeldi kemur ekki úr vegabréfi. Það sprettur af fátækt, útilokun og lygum Ian McDonald skrifar
Skoðun Aðgerðaleysi fjármálaráðherra kemur erlendum tæknirisum til góða Guðmundur Halldór Björnsson skrifar
Skoðun Hækkun þar, hækkun hér, á endanum allt kaupið í skattana fer! Jóhann Friðrik Friðriksson skrifar
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun