Evrópskir og bandarískir öfgamenn lögðu saman á ráðin um fjöldabrottvísanir Kjartan Kjartansson skrifar 1. júní 2026 10:07 Martin Sellner, austurrískur hægriöfgamaður, fundaði með AfD-liðum á laun fyrir tveimur árum. Nú er ekkert pukur lengur og fengu evrópsku öfgamennirnir liðsauka frá Gregory Bovino, fv. innflytjendaeftirlitsmanni Trump, sem er aðdáandi eins af helstu hershöfðingjum Hitlers. Vísir/Getty Fyrrverandi yfirmaður bandarískrar landamæraeftirlitsstofnunar sem leiddi blóðuga rassíu í þarlendum borgum tók þátt í ráðstefnu evrópskra öfgahægrimanna um helgina. Þar ræddu þeir sameiginlegar hugmyndir þeirra um fjöldabrottvísanir á dökkum innflytjendum sem voru þar til fyrir skemmstu bundnar við ystu hægriöfgar.
Um fimm hundruð öfgahægriaðgerðasinnar og áhrifavaldar komu saman utan við Porto í Portúgal á laugardag. Þingmenn frá Valkosti fyrir Þýskaland (AfD) og Vox á Spáni tóku þátt. Gregory Bovino, fyrrverandi yfirmaður CBP í Bandaríkjunum, og Jared Taylor, bandarískur hvítur þjóðernissinnar, voru heiðursgestir. Á dagskrá ráðstefnunnar voru svokallaðir „endurflutningar“ (e. remigration), hugtak sem öfgahægrimenn hafa notað yfir fjöldabrottvísanir innflytjenda sem eru ekki af hvítum evrópskum uppruna. Í kynningarefni ráðstefnunnar var vísað til samsæriskenningar um að valdastétt í vestrænum ríkjum vinni að því á laun að flytja inn hörundsdökka innflytjendur í stórum stíl gagngert til þess að „skipta út“ hvítum íbúum ríkjanna. Aðdáandi „Eyðurmerkurrefs“ Hitlers Bovino þessi stýrði umfangsmiklum innflytjendarassíum Trump-stjórnarinnar í nokkrum bandarískum borgum í fyrra og í vetur. Hann hrökklaðist á endanum úr embætti eftir að fulltrúa ICE, innflytjendaeftirlitsins, skutu tvennt til bana í Minneapolis í vetur. „Ég er mjög ánægður að koma í heimsókn og veita Evrópumönnunum smá sérfræðiráðgjöf“ um hvernig eigi að taka á „ólöglegum innflytjendum sem eru að eyðileggja evrópska menningu“ hefur evrópska blaðið Politico eftir Bovino á ráðstefnunni. Hann lofaði einnig Erwin Rommel, yfirhershöfðingja í þýska hernum sem stýrði meðal annars hersveitum nasista í Norður-Afríku í síðari heimsstyrjöldinni. Hætt að pukrast með endurflutninga Eitt sinn var sú tíð að fjarhægriflokkar eins og AfD veigruðu við að nota hugtakið endurflutningar þar sem það þótti of öfgafullt. Fylgjendur stefnunnar vilja enda meðal annars vísa ríkisborgurum eigin lands úr landi ef þeir eru ekki taldir hafa aðlagast samfélaginu nægilega vel að þeirra mati. Þegar það spurðist að nokkrir fulltrúar flokksins hefðu setið leynilegan fund með Martin Sellner, austurrískum öfgahægrimanni, þar sem endurflutningar voru til umræðu árið 2024 sóru leiðtogar flokksins það af sér. Mótmælaalda gegn AfD braust út í Þýskalandi vegna þátttöku fulltrúa þeirra í fundinum. Nú er öldin önnur. Sellner var einn skipuleggjenda ráðstefnunnar í Porto og hann talaði glaður við fjölmiðla. Þar hafði Sellner nokkuð til síns máls enda hefur AfD síðan talað fullum fetum um endurflutninga. Sagði hann þeim meðal annars að hugmyndir hans væru nú komnar inn í meginstraum stjórnmálanna. Hvatti hann Evrópumenn til þess að sigrast á „sektarkennd“ og „sjálfshatri“ sem hann rakti til „samkomulags eftirstríðsáranna“. Telur sig ekki fullan af hatri þótt hann vilji ekki þeldökkt fólk í Kanada Þeir straumar og þær stefnur sem voru efst á baugi í Portúgal um helgina hafa einnig náð til Íslands að undanförnu. Þannig hafa ungliðar Miðflokksins meðal annars talað um „endurflutninga“ á útlendingum frá Íslandi. Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins og þingmaður hans, hefur einnig ítrekað rætt um „útskipti“ á Íslendingum í ræðu og riti. Politico segir að þeir ræðumenn á ráðstefnunni um helginni sem blaðamenn blaðsins ræddu við hafi svarið af sér hvers kyns kynþáttahatur. „Ég tel mig ekki hatursfulla manneskju. Ég geng ekki um og hræki á þeldökkt fólk vegna þess að það er í landinu mínu. Ég tel bara að það eigi ekki heima þar,“ sagði Daniel Tyrie, kanadískur öfgamaður sem var á meðal ræðumanna.
Donald Trump Bandaríkin Innflytjendamál Innflytjendarassíur ICE í Bandaríkjunum Portúgal Spánn Þýskaland Tengdar fréttir Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Innflytjenda- og tollaeftirlit Bandaríkjanna, eða ICE, hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarna daga. Það er sérstaklega vegna ástandsins í Minnesota, þar sem þúsundir útsendara ICE og annarra stofnana heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna hafa vakið mikla athygli að undanförnu og skotið tvo íbúa til bana. 28. janúar 2026 08:02 Telja Evrópu traðka niður andóf gegn Úkraínustríðinu Bandarísk stjórnvöld telja evrópska ráðamenn hafa óraunhæfar væntingar um stríðið í Úkraínu og að þeir beiti ólýðræðislegum aðferðum til að þagga niður í andófsröddum við það heima fyrir. Þá telja þau Evrópu standa frammi fyrir „eyðingu“ siðmenningar sinnar. 5. desember 2025 16:00 Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Fleiri fréttir Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Sjá meira
Róa á nýnasistamið í leit að ICE-liðum Innflytjenda- og tollaeftirlit Bandaríkjanna, eða ICE, hefur verið mikið á milli tannanna á fólki undanfarna daga. Það er sérstaklega vegna ástandsins í Minnesota, þar sem þúsundir útsendara ICE og annarra stofnana heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna hafa vakið mikla athygli að undanförnu og skotið tvo íbúa til bana. 28. janúar 2026 08:02
Telja Evrópu traðka niður andóf gegn Úkraínustríðinu Bandarísk stjórnvöld telja evrópska ráðamenn hafa óraunhæfar væntingar um stríðið í Úkraínu og að þeir beiti ólýðræðislegum aðferðum til að þagga niður í andófsröddum við það heima fyrir. Þá telja þau Evrópu standa frammi fyrir „eyðingu“ siðmenningar sinnar. 5. desember 2025 16:00