Emilsþruma, þrenna, fjórtán ára með stoðsendingu og markaveislur út um allt Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. júní 2026 07:53 Karl Friðleifur Gunnarsson fagnar marki sínu í gær en hann var bæði með mark og stoðsendingu í leiknum. Vísir/Pawel Cieslikiewicz Það vantaði ekki mörkin í Bestu deild karla í fótbolta í níundu umferðinni í gærkvöldi og nú má sjá þau öll hér inni á Vísi.
Fjórir leikir fóru fram í gær og í þeim voru skoruð 25 mörk eða yfir sex að meðaltali í leik. Flest þeirra komu í Vesturbænum eða átta talsins en það voru sjö mörk skoruð í Vestmannaeyjum og sex mörk á Hlíðarenda. Víkingar héldu sigurgöngu sinni áfram þegar þeir unnu 5-1 stórsigur á Val á Hlíðarenda. Óskar Borgþórsson skoraði þrennu og lagði upp eitt en hin mörkin skoruðu Helgi Guðjónsson og Karl Friðleifur Gunnarsson. Tryggvi Hrafn Haraldsson skoraði fyrir Val. Klippa: Mörkin úr leik Vals og Víkings KR-ingar fylgja Íslandsmeisturunum eftir en voru næstum því búnir að missa niður 4-1 forystu í 5-3 sigri á KA-mönnum í Vesturbænum. Aron Sigurðarson skoraði tvö mörk fyrir KR, þar af annað með skoti beint úr aukaspyrnu. Hin mörkin skoruðu Eiður Gauti Sæbjörnsson, Luke Rae og Galdur Guðmundsson. Jakob Snær Árnason, Birgir Baldvinsson og Markús Máni Pétursson skoruðu fyrir KA. Klippa: Mörkin úr leik KR og KA Eyjamenn hrukku heldur betur í gang og unnu 6-1 stórsigur á Keflavík. Róbert Elís Hlynsson, Halldór Jón Sigurður Þórðarson, Alex Freyr Hilmarsson, Milan Tomic og Omar Sowe skoruðu mörk Eyjaliðsins en Muhamed Alghoul minnkaði muninn fyrir Keflavík. Stjörnumenn lentu undir á móti Þór Akureyri fyrir norðan en svöruðu með þremur mörkum í seinni hálfleik. Daníel Finns Matthíasson skoraði með skoti beint úr aukaspyrnu, Emil Atlason kom Garðbæingum yfir með sannkölluðu þrumuskoti af löngu færi og Haukur Örn Brink innsiglaði sigurinn eftir stoðsendingu frá hinum fjórtán ára gamla Arnari Breka Björnssyni. Ágúst Eðvald Hlynsson kom Þór í 1-0 á áttundu mínútu. Klippa: Mörkin úr leik Þórs og Stjörnunnar
Besta deild karla Víkingur Reykjavík KR ÍBV Stjarnan Þór Akureyri Valur KA Keflavík ÍF Mest lesið Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Fótbolti Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Ólafur Ingi hættur með Blika Íslenski boltinn Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Fótbolti Hætti við Lakers sökum hroka Kobe Körfubolti Kane og Putellas hlutu Gullboltann Fótbolti Sendi kveðju til Kompany á sjúkrahúsið Fótbolti Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Enski boltinn Sjáðu bombu Mikaels Egils sem neitaði að fagna Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll kynnti teymið sitt Ólafur Ingi hættur með Blika „Virkaði öfugt við það sem hann vonaðist til“ Harma ákvörðun Hattar Ingibjörg valin sú efnilegasta Uppaldir spiluðu eitt prósent mínútna hjá Val Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Kveðja Kristin og Kristin Eiríkur nýr þjálfari Vals Treyja Gylfa fór á milljón KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“