Ríkið skerst í leikinn í von um að samningar haldi Árni Sæberg skrifar 20. maí 2026 13:15 Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra verður hluti af þríhliða samtali við aðila vinnumarkaðar. Vísir/Ívar Fannar Fulltrúar ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins hafa hafið þríhliða samtal með það að markmiði að forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði haldi haustið 2026.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra, Finnbjörn Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands og Bjarni Benediktsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hafi ákveðið að hefja samtalið. Stýrihópur og þrír undirhópar Leitað verði leiða til að hemja verðbólgu og unnið að greiningum sem legið geta til grundvallar við frekara mat á stöðunni. Skipaður hafi verið stýrihópur með fulltrúum forsætisráðuneytisins, fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins og þrír undirhópar. BSRB, BHM, KÍ og Samband íslenskra sveitarfélaga eigi fulltrúa í tveimur hópanna. Fyrsti undirhópurinn vinni að greiningu á áhrifum vaxta, verðbólgu og verðtryggingar á mismunandi samfélagshópa, annar undirhópurinn vinni að greiningu á valkostum til að draga úr sjálfvirkum verðlagsbreytingum og þriðji undirhópurinn vinni að greiningu á leiðum til að styrkja launatölfræði. Einnig muni stýrihópurinn leita mats á áhrifum stríðsins við Persaflóa á verðlagsþróun hér á landi. Stýrihópurinn hafi yfirumsjón með vinnunni og staða greininga verði kynnt á fundum þjóðhagsráðs í júní og september. Vinnu lýkur í byrjun september Vinna hópanna er að hefjast og mun ljúka í byrjun september. Verði verðbólga yfir 4,7 prósentum í ágústmælingu Hagstofunnar opnast heimild í september til að segja upp svokölluðum stöðugleikasamningum ef ekki næst að semja um viðbragð við forsendubresti. Samkvæmt verðbólguspá Seðlabankans verður verðbólga vel yfir því markmiði í ágúst.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Vinnumarkaður Atvinnurekendur Stéttarfélög Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Sjá meira