Stjórnvöld í Tasmaníu biðjast afsökunar á líffæra- og líkamshlutaþjófnaði Hólmfríður Gísladóttir skrifar 19. maí 2026 06:54 Líffærin og líkamshlutarnir voru teknir úr sýningu árið 2018. University of Tasmania Stjórnvöld í Tasmaníu í Ástralíu hafa beðist afsökunar á þjófnaði á líffærum og líkamshlutum látinna einstaklinga sem átti sér stað á árunum 1966 til 1991. Líkamspartarnir voru teknir án leyfis frá fjölskyldum viðkomandi, afhentir háskóla og í sumum tilvikum sýndir opinberlega.
Málið var fyrst tekið til athugunar árið 2016, eftir að grunur vaknaði um að þrjú bein sem voru í vörslu RA Rodda-safnsins við University of Tasmania í Hobart hefðu verið tekin án samþykkis. Yfirvöld fyrirskipuðu rannsókn árið 2023 og í ljós kom að meinafræðingar höfðu á tímabili stolið líffærum og líkamshlutum eftir krufningu og fært safninu. „Þetta er búið að vera martröð frá því að okkur var sagt frá þessu,“ hefur BBC eftir Cheryl Springfield. Bróðir hennar, David Maher, lést í bílslysi árið 1976, aðeins fjórtán ára, en það var ekki fyrr en löngu seinna sem hún var látin vita að farið hefði verið ránshendi um líkamsleifar hans. John Santi, hvers bróðir lést í mótorhjólaslysi sama ár, sagði í samtali við Australian Associated Press að hann hefði fengið að vita það 50 árum síðar að heila bróður hans hefði verið stolið. RA Rodda-safnið var stofnað árið 1966 og var ætlað að stuðla að kennslu og rannsóknum í meinafræði og öðrum greinum. Að minnsta kosti 177 líffæri og líkamshlutar rötuðu á safnið án heimildar aðstandenda en þau voru tekin úr sýningu árið 2018.
Ástralía Mest lesið Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Ætla að rífa umdeilda kaffiskúrinn við Leifsstöð Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Fleiri fréttir Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Sjá meira