Oddvitaáskorunin: Gildran betri en Kaleo Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 15. maí 2026 18:02 Ég og Hlín konan mín í þvílíku fjöri. Hún pínu meira töff en ég. Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.
Árni Jónsson er oddviti Vina Mosfellsbæjar í Mosfellsbæ. Ég heiti Árni Jónsson og er 54 ára, bý með Hlín konunni minni og þremur börnum í Leirvogstungu. Vinna mín undanfarin 20 ár hefur að mestu leiti snúist um að gera gott samfélag betra en ég hef verið að stýra frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum, sundlaugum og einu íþróttafélagi. Það sem nærir mig mest er samvera með góðu fólki sem verður enn betra í sundi eða fjallgöngu í Mosfellsbæ. Í frítíma finnst mér einstaklega gaman að fara á tónleika eða horfa á íþróttakappleiki. Ástæðan fyrir því að ég tók áskoruninni að hoppa á Vini Mosfellsbæjar lestina er að í lestinni er fjölbreyttur hópur farþega sem endurspeglar íbúa í sveitarfélaginu. Saman mynda þessir einstaklingar hóp sem vill gera góðan bæ betri óháð allri flokkapólitík. Ég held að þegar öllu er á botninn hvolft þá eru Vinir Mosfellsbæjar „ekkert verri en hinir“. Hvar á Íslandi myndir þú búa ef þú mættir ekki búa í þínu sveitarfélagi? „Ísafirði“ Hver er uppáhalds bókin þín? „Austur eftir Braga Pál Sigurðsson“ Ef þú þyrftir að skera niður í rekstri sveitarfélagsins þíns um hundrað milljónir, hvar myndir þú skera niður? „Ég myndi leita til allra stjórnenda í sveitarfélaginu varðandi tækifæri í sparnaði. Þau eru best í að sjá tækfærin.“ Með systkinum mínum Kidda og Önnu en systir mín varð einmitt 60 ára 13. maí. Ef þú fengir hundrað milljónir til að efla tiltekin verkefni eða svið í sveitarfélaginu, hver væru þau? „Besta fjárfestingin með bestu ávöxtunina er að setja meiri pening í skipulagt frístundastarf bæði hjá sveitarfélaginu og frjálsum félögum.“ Hver væri titill ævisögu þinnar? „Ekkert verri en hinir“ Hvort er betra að hringja eða senda skilaboð? „Alltaf að hringja.“ Hvaða skoðun þín er óvinsæl innan eigin flokks? „Að Gildran sé betri en Kaleo.“ Í miðri kosningabaráttu var spilað á heimavelli með Fannari YNWA Ef þú gætir orðið sérfræðingur í einhverju samstundis, hvað væri það? „Finna réttan og skemmtilegan þátt á Netflix á 3 mínútúm.“ Hvaða ákvörðun myndir þú taka á fyrsta ári í sveitarstjórn sem yrði umdeild? „Íbúakosning um þéttleika Blikastaðalands.“ Hvað var það síðasta sem þú notaðir gervigreindina í? „Var í Krónunni, nýkominn af Pizzagerðarnámskeiði og ég vissi ekki hvernig ég gæti fundið 00 hveiti.“ Hvaða flokki gætir þú hugsað þér að mynda meirihluta með? Hvaða flokki gætir þú alls ekki unnið með? „Ég er í Vinum Mosfellsbæjar og vil gjarnan vinna með öllum framboðum. Það er reyndar nokkuð langt á milli Vina Mosfellsbæjar og Miðflokksins þegar kemur að fjölbreytileika og jafnrétti og því líklegt að við ættum erfitt með að ná saman.“ Góð samvera á fjalli með yndislegum vinum Bjarka og Hildi. Nefndu mistök sem þú hefur gert á ævi þinni? „Ég svaraði spurningakönnun vegna kosninga fyrir RÚV alveg kolvitlaust og kom Vinum Mosfellsbæjar í tómt vesen í 12 klst.“ Hvað er betra í þínu sveitarfélagi en öðrum? „Ómetanleg náttúra í bakgarðinum.“ Hvað borðar þú í morgunmat? „Súrdeigsbrauð úr Mosfellsbakarí.“ Yndislega fjölskylda mín síðustu áramót frá hægri Fannar Elís, Matthildur Freyja, Hörður Þór og Hlín. Þau eru gullið mitt. Hvað fer í taugarnar á þér varðandi stjórnun sveitarfélagsins í dag? „Það fer svo fátt í taugarnar á mér en það er helst að Vinir Mosfellsbæjar komust ekki í meirihluta.“ Hvað finnst þér raunhæft að afreka á næstu fjórum árum? „Bæta stöðu barnafjölskyldna m.a. með því að koma á gjaldfrjálsum strætó, lengja opnunartíma um helgar í sundi fyrir bráðnauðsynlega símalausa samveru. Komast nær sátt hjá íbúum sveitarfélagsins varðandi þéttingu í Blikastaðalandi. Eiga í virku íbúasamráði m.a. með óformlegu spjalli í Bónus og Krónunni.“ Hvert er uppáhalds lagið þitt? „Hoppípolla með Sigur Rós.“ Hvaða mistök hafa verið gerð í þínu sveitarfélagi undanfarin ár? „Að ná fullri sátt við íbúa vegna þéttingar í Blikastaðalandi.“ Hvert er uppáhalds gælunafnið sem þú hefur fengið og af hverju? „Ég hef ekkert uppáhalds gælunafn en mér þykir alveg vænt um „Gamli“ en skýringin á því er að ég er svo gömul sál. Var samt yfirleitt yngstur í vinahópnum. Gælunafn mitt tengt starfi mínu sem pylsusala er líka krúttlegt Árni pulsa“ Hvaða loforð úr kosningabaráttunni munt þú standa við? „Að vera með virkt íbúasamráð og vinna að fullum krafti fyrir íbúa sveitarfélagsins.“
Oddvitaáskorunin Mosfellsbær Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Einn mánuður án áfengis breytti öllu Lífið Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Lífið Skemmtilega söguhornið: Hefði fólk skilið Óskar fyrir 100 árum síðan? Áskorun 50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Áskorun Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Lífið Eitt allra krúttlegasta mót ársins Lífið Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Lífið Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Lífið Myndin tileinkuð mömmu Lífið Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Lífið Fleiri fréttir Eitt allra krúttlegasta mót ársins Ólíkt hafast þeir að forsetarnir fyrrverandi Einn mánuður án áfengis breytti öllu Krakkatía vikunnar: Pöndur, Instagram og Sveppi Augnablikið þegar fréttastofan sjálf varð að frétt Skrifaði gamanþætti um löggur á meðan hann var sjálfur að leika löggu Myndin tileinkuð mömmu Skrifaði sig í sögubækur Cambridge Fréttatía vikunnar: SÁÁ, pulsa og óharðnaðir unglingar Opnar sig um bótoxnotkunina Skipti máli að börn með krabbamein eigi sinn dag Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Hvað veistu um… London? Öskrandi nýnemar tolleraðir og busaballið handan við hornið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Gloria Steinem er látin Annað barn á leiðinni hjá Balta og Sunnevu Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Greindu frá dánarmeini Tim Curry Eydís Elfa og Óli Gunnar eiga von á öðru barni Kampavínsdrykkja í óvissuferð leiddi til óvæntra bónorða Ný stikla varpar frekara ljósi á Harry Potter Anthony Karl og Eva selja hæð í Hlíðunum Foreldrar eigi alls ekki að vera vinir barna sinna Héldu eina glæsilegustu skírnarveislu sumarsins Þórdís segir skilið við Flekaskil Menningarmýs máluðu bæinn rauðan Sjá meira