Sport

Venus verður sú elsta til að spila á Opna franska

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Venus Williams og Hailey Baptiste munu mynda tvíeyki á Opna franska meistaramótinu.
Venus Williams og Hailey Baptiste munu mynda tvíeyki á Opna franska meistaramótinu. Scott Taetsch/Getty Images

Tennis goðsögnin Venus Williams hefur fagnað góðu gengi að undanförnu og er búinn að tryggja sér sæti í tvíliðakeppninni á Opna franska meistaramótinu.

Hin 45 ára gamla Williams verður þar með elsta kona sögunnar til að keppa á Opna franska en hún mun mynda teymi með samlöndu sinni frá Bandaríkjunum, hinni 24 ára gömlu Hailey Baptiste. Vonir eru bundnar við að þær fari langt á mótinu.

Williams hefur ekki tekið þátt í Opna franska síðan árið 2021 en hún keppti fyrst á mótinu fyrir tæpum þrjátíu árum.

Williams hefur tvisvar fagnað sigri í tvíliðaleik á Opna franska með systur sinni Serenu, árin 1999 og 2010. Systurnar mættust einu sinni í úrslitaleiknum í einliðaleik, árið 2002 þar sem Serena sigur úr býtum.

Fyrr á þessu ári varð Venus Williams elsta kona sögunnar til að keppa á Opna ástralska meistaramótinu. Þar keppti hún í einliðaleik en á Opna franska verður hún eingöngu í tvíliðaleik.

Williams verður einnig sýnileg utan vallar á Opna franska sem opinber talsmaður mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×