Saka tóbaksfyrirtæki um að halda nikótínpúðum að börnum Kjartan Kjartansson skrifar 15. maí 2026 07:52 Nikótínpúðar hafa átt vaxandi vinsældum að fagna. Byrjað var að leggja tóbaksgjald á þá á Íslandi í fyrsta skipti í fyrra. Um þriðjungur íslenskra ungmenna notaði slíka púða samkvæmt norrænni rannsókn sem var birt í fyrra. Vísir/Egill Alþjóðaheilbrigðisstofnunin sakar tóbaksfyrirtæki um að reyna að búa til nýja kynslóð nikótínfíkla með grimmri markaðssetningu á nikótínpúðum gagnvart börnum og ungmennum. Hún varar ríki heims við því apa frjáslynda löggjöf Svía um slíka púða.
Sala á nikótínpúðum hefur margfaldast á undanförnum árum og er sú tóbaksvara sem er í örustum vexti samkvæmt nýrri skýrslu WHO um þá. Þetta er fyrsta skýrsla stofnunarinnar um nikótínpúða og áhrif þeirra. Etienne Krug, forstöðumaður forvarna hjá WHO, segir púðana sérhannaða til þess að fólk ánetjist nikótíni. Verja þurfi ungmenni fyrir ágangi tóbaksfyrirtækjanna. Þau beini spjótum sínum að ungu fólki með því að setja sæt bragðefni í púðana, markaðssetja þau grimmt og fá til þess samfélagsmiðlaáhrifavalda. Púðarnir geta innihaldið mikið magn nikótíns og eru því afar ávanabindandi, að sögn sérfræðinga WHO. Þeir geti leitt notendur út í reykingar og hafi sjálfir í för með sér aukna hættu á hjarta- og æðasjúkdómum og geti skaðað heilaþroska hjá ungu fólki. WHO varar sérstaklega við því að tóbaksfyrirtækin noti Svíþjóð og frjálslynda löggjöf þar um nikótínpúða til þess að ýta undir nikótínfíkn. Fyrirtækin hafa vísað til nálgunar Svía sem fyrirmyndar þar sem verulega hafi dregið úr tóbaksreykingum þar, að því er segir í frétt Politico af skýrslu WHO. Ranti Fayokun, vísindamaður hjá WHO, hafnar því að útbreidd nikótínpúðanotkun í Svíþjóð sé ástæða þess að þar hafi náðst árangur gegn reykingum. Notuðu rök tókbaksframleiðenda til að mótmæla banni Svíþjóð er með undanþágur frá takmörkunum sem gilda um nikótínpúða í Evrópusambandinu. Það vinnur nú að því að herða reglur um markaðssetningu og sölu á púðunum. Svíar hafa beitt sér gegn ríkjum sem hafa gengið lengra eins og Frökkum sem bönnuðu sölu púðanna í síðasta mánuði. Kvörtuðu Svíar til framkvæmdastjórnar ESB og sökuðu Frakka um að brjóta gegn grunngildum sambandsins um sameiginlegan markað. Sænska ríkisútvarpið birti umfjöllun í vikunni um að fulltrúa sænskra stjórnvalda hefðu meðal annars notað rök frá tóbaksframleiðendunum sjálfum til þess að mótmæla banninu í Frakklandi.
Tóbak Heilbrigðismál Nikótínpúðar Svíþjóð Mest lesið „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Sama jarmið í sauðfé og ferðamönnum Innlent Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fleiri fréttir Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Sjá meira