Misánægð með þéttingu en stefnan hafi valdið hækkunum Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 12. maí 2026 19:32 Afar mismunandi er hvaða afstöðu oddvitar framboða í Reykjavík hafa til þéttingu byggðar í borginni. Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks telja þéttingu byggðar í miðborginni misheppnaða. Breyta þurfi um stefnu. Oddviti Samfylkingar er ánægður með hvernig til hefur tekist. Fólk hefur áhyggjur þvert á flokka af háu íbúðaverði á svæðinu.
Nýtt aðalskipulag í Reykjavík var samþykkt 2013 í borgarstjórn með það að meginmarkmiði að þétta byggð í borginni. Besti flokkurinn og Samfylking voru í meirihluta á þeim tíma. Stefnunni hefur verið framfylgt á undanförnum árum með umtalsverðri uppbyggingu húsnæðis miðsvæðis í borginni. Í kynningarmyndbandi borgarstjóra frá því í mars kemur fram að fjögur þúsund nýjar íbúðir hafi litið dagsins ljós síðasta áratuginn á reitum nálægt fyrirhugaðri borgarlínu. Um tvö þúsund íbúðir séu í byggingu. Þá sé gert ráð fyrir sextán þúsund nýjum íbúðum í borginni næstu tíu ár. Um átta tíu prósent þeirra eiga að vera í nálægð við stofnæð borgarlínu. Samfylking og Sjálfstæðisflokkur á sitt hvorum ásnum Afstaða flokka sem nú bjóða sig fram til borgarstjórnar til þéttingar byggðar og hvernig til hefur tekist er afar mismunandi. Fréttastofa óskaði eftir áliti oddvita þeirra eða sótti stefnu í málaflokknum á heimasíðu flokkanna. Samfylkingin hefur verið í meirihluta í borginni síðustu sextán ár. Pétur Marteinsson nýr oddviti flokksins er sáttur við útkomuna. „Mér hefur fundist margt mjög vel heppnað. Hverfisgatan er t.d. vel heppnuð, Kirkjusandur er velheppnaður. Það eru mjög margir vel heppnaðir þéttingarreitir. Það hefur hins vegar verið of mikil hækkun á íbúðaverði á reitunum á stuttum tíma og það skýrist af ýmsu,“ segir Pétur. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins er algjörlega ósammála Pétri. „Þétting byggðar er mjög misheppnuð. Við finnum það á borgarbúum. Það hafa verið byggð mjög þétt, dimm og háreist hverfi með lítið af bílastæðum og grænum svæðum. Það er ekki verið að byggja það sem fólkið vill. Við þurfum að láta af þessari þéttingarstefnu. Við viljum skipuleggja ný hverfi og brjóta nýtt land. Ef það eru einhver tækifæri inni í hverfum þarf það að vera hóflegt. Núna sitjum við uppi með dýrar eignir sem eru margar hverjar dimmar og fermetraverð er hátt,“ segir Hildur. Afar misjafnt er hvaða afstöðu flokkarnir hafa til þéttingar í borginni.Vísir/Lýður Líf Magneudóttir formaður umhverfis- og skipulagsráðs og frambjóðandi Vinstrisins segir um vaxtaverki að ræða í nýjum hverfum en þétting byggðar sé skynsamleg. „Ég tel okkur hafa farið ágætlega eftir aðalskipulaginu sem var samþykkt á sínum tíma og mér finnst engin ástæða til að endurskoða þéttingastefnuna,“ segir Líf. Alexandra Briem formaður borgarráðs og frambjóðandi Pírata er á sama máli. „Þéttingarstefnan er mjög góð því með henni verður húsnæðið ódýrara í rekstri sem og uppbygging fyrir sveitarfélagið. Samfélögin sem upp byggjast verða betri því allir innviðir eru meira og minna komnir í hverfið,“ segir hún. Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar telur núverandi byggingareiti of kalda. „Okkur finnst þéttingarreitirnir kaldir og gráir og fullir af steypu. Það þarf að klára þá og við viljum gera þá væna og græna og fylla þá af mannlífi. Við viljum að þetta séu staðir þar sem hægt er að koma saman með börnin sín og fá sér kaffi og hafa það huggulegt. Það vantar algjörlega á þessa þéttingarreiti í borginni,“ segir Björg. Minni íbúðir hafi hækkað um tugi milljóna Ari Edwald oddviti Miðflokksins er afar ósáttur við þéttingu byggðar. „Það verður að binda enda á þessa ofurþéttingarrstefnu. Hún er undirrótin af mjög mörgu slæmu í borginni. Ég hef sett fram útreikning þar sem kemur fram að þessi stefna hafi hækkað verð á sextíu fermetra íbúð um 22 milljónir. Þessi stefna er búin að setja þröskuld fyrir fólk að eignast íbúð í borginni og við þurfum að breyta því,“ segir Ari. Fólk sé komið með nóg Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar er á svipuðum nótum og Ari varðandi þéttingu byggðar hingað til. „Ég held að fólk sé komið með alveg nóg af því að það sé ráðist inn í hverfi borgarinnar og troðið niður blokkum þar sem fólk er að rífast um bílastæði og skólar eru yfirfullir, leikskólar ekki fyrir hendi. Þetta er ekki góð stefna og hún hefur verið illa framkvæmd,“ segir Einar. Ingimar Þór Friðriksson oddviti framboðsins Góðan daginn segir einnig að þéttingarstefnan sé misheppnuð. „Hún hefur gengið illa. Arkitektar hafa t.d. bent á að erfitt sé að hanna gæðahúsnæði vegna krafna frá borginni. Við höfum verið í sambandi við þá um hvernig er hægt að breyta þessu öllu saman og munum sannarlega gera það ef okkur gefst tækifæri til þess,“ segir Friðrik. Fjárfestar hafi mokgrætt Í stefnuskrá Sósíalista varðandi uppbyggingu húsnæðis kemur fram að þeir vilji kveðja tíma lóðabrasks og eyðileggjandi stefnu Reykjavíkurborgar sem felist í að selja byggingarrétt á lóðum til hæstbjóðenda. Sú stefna hafi keyrt húsnæðisverð upp í rjáfur. Þar að auki hafi fjárfestar mokgrætt á því að sitja á lóðum, selja þær áfram og byggja ekkert árum saman eða byggja að lokum margfalt dýrari íbúðir til að mæta lóðasöluverði Reykjavíkurborgar, kostnaði vegna áframseldra lóða og hagnaðarkröfu fjárfestanna sjálfra sem byggja, sem og allra hinna ótalmörgu milliliðanna. Okkar borg segir í stefnuskrá sinni að flokkurinn ætli að taka U-beygju í skipulagsmálum sem varða samgöngur, húsnæðismál og öryggi borgaranna. Byggjum breitt en ekki þétt! Byggjum til framtíðar, segir í stefnu framboðsins. Flokkur fólksins segist í stefnu sinni ætla að vinda ofan af ofurþéttingu byggðar eins og það er orðað. Flokkurinn ætlar að leggja áherslu á mannvæna hönnun, græn svæði og gera ríkar kröfur um birtu og hljóðvist þegar ný hverfi og ný byggð eru skipulögð.
Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sjálfstæðisflokkurinn Samfylkingin Viðreisn Framsóknarflokkurinn Flokkur fólksins Okkar borg Góðan daginn Sósíalistaflokkurinn Skipulagsmál Mest lesið Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Innlent Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Innlent Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ Innlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Björgunarsveitir sinntu tveimur slösuðum ferðamönnum Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu ,,Þetta eru kosningaherferðarfundir Kristrúnar Frostadóttur fyrir Já til að sjá'' Fyrir fólk sem búi á almyrkvaslóðinni sé nóg að „vera úti í garði og upplifa allt“ Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni „Við sem samfélag þurfum að standa keik á móti þessu“ Aðallega „karlar að drepa aðra karla“ „Einfaldlega ók bifreið frá punkti A á punkt B“ Í gæsluvarðhaldi en segist einungis hafa verið bílstjóri Billy Long kominn á klakann Helga Lára Haarde aðstoðar Hildi Fólksfjöldi á Hellissandi tífaldast Leita ferðamannanna sem skildu fimm ára son sinn eftir í bíl Pysjutímabilið formlega hafið Bílstjóri ákærður fyrir að nauðga fatlaðri konu Bein útsending: Umdeildur fundur Baudenbacher Neitaði að borga og sló vagnstjórann Gat ekki hringt í 112 þegar alblóðugur maður bankaði upp á Huga þurfi líka að heimferðinni Íslendingur og útlendingur í gæsluvarðhaldi vegna mannsláts í Kópavogi Ákærður fyrir að nauðga stúlku í heitum potti fyrir rúmum áratug Bónus lokað vegna eldsvoða um helgina Ætlar að hafa lokað þrátt fyrir tífaldan íbúafjölda Báturinn fannst eftir nokkuð umfangsmikla leit Þurfa dýr að vera með sólmyrkvagleraugu þann 12. ágúst? Þrír handteknir á Þingvöllum Hvað er vitað um manndrápið á Kársnesi? TF-SIF grennslast fyrir um skemmtibát á Sundunum Aukinn viðbúnaður vegna almyrkva á Reykjanesi Sjá meira