Farage sextánfaldar sætin á sveitarstjórnarstiginu Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 9. maí 2026 11:53 Keir Starmer forsætisráðherra stígur krappan dans. AP Niðurstöður sveitastjórnarkosninga sem fóru fram víða um Bretland fyrir helgi komu fáum á óvart þó þær séu til marks um grundvallarbreytingar í breskum stjórnmálum. Umbótaflokkur Nigels Farage bætti rúmlega sextánfalt við sig en stólparnir tveir í breskum stjórnmálum til rúmlega hundrað ára guldu afhroð.
Stjórnmálafræðingurinn Eiríkur Bergmann segir kosningarnar marka tímamót. „Þetta eru sögulegar niðurstöður. Þetta sterka tveggja flokka kerfi sem er við lýði í Bretlandi virðist algjörlega brotna upp. Nú eru það ekki tveir flokkar sem bera algjöran ægishjálm yfir breskum stjórnmálum heldur eru þeir orðnir fimm talsins,“ segir hann. Auk Verkamannaflokksins, Íhaldsflokksins og að minna leyti Frjálslyndra demókrata má nú segja að Umbótaflokkur Nigels Farage og Græningjaflokkur Zacks Polanski teljist til kerfisflokka. Umbótaflokkurinn er nú stærsti flokkur landsins á sveitarstjórnarstiginu. Starmer í kröppum dansi Sótt er að Keir Starmer forsætisráðherra og formanni Verkamannaflokksins úr öllum áttum, jafnvel innan úr flokknum. Borgarstjórinn í Manchester, Andy Burnham, er á meðal þeirra sem hafa sýnt því áhuga að velta formanninum og mun hann eiga þónokkra stuðningsmenn á þingi. „Staða Starmer hefur verið að veikjast allverulega að undanförnu. Eftir gríðarlegan sigur í þingsætum talði í síðustu þingkosningum hefur hann verið á fallanda fæti. Hann er ekki sérlega afgerandi stjórnmálamaður. Hann slær í og úr og reynir að ná til breiðs hóps og það hefur verið örðugt hjá honum,“ segir Eiríkur. „Það er engin leið að segja. Stóra prófið verður þingkosningar, nái hann að hanga á formannsstólinum þar til. Það er of snemmt að lýsa yfir endalokum Keirs Starmer í breskum stjórnmálum.“
Bretland Kosningar í Bretlandi Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Fólk megi lesa í ræðuna umtöluðu eins og það vilji Innlent Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Innlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Fleiri fréttir Ræddu Patriot-flaugar og friðarviðræður Vill að RFK gangi harðar fram gegn bólusetningum Fólk fast í verslunarmiðstöð eftir skjálftann í Japan „Við munum ná markmiðum okkar“ Vilja að Hæstiréttur taki afstöðu Stukku fram af Geimnálinni Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Bandarískir hermenn ekki látnir svara til saka á Bretlandseyjum Skjálfti að stærð 7,1 skók Japan Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Árásirnar haldi áfram skili viðræðurnar ekki sínu Önnur hitabylgja nálgast Spán Kveiktu í tveimur moskum Handtekinn við Kastrup eftir að tilkynnt var um meinta skammbyssu Fölsk játning í formi lags Drífa segir nálgunarbann vannýtt úrræði Skutu niður meinta rússneska dróna í lofthelgi ESB í þriðja sinn Engar íranskar árásir gerðar á meðan sprengjuhlé Bandaríkjanna varir Þrír látnir eftir skothríð á matarhátíð í Seattle Netayahu sakar Mamdani um að „sá hatri“ Á fjórða hundrað þúsund hafa flúið heimili sín vegna gróðurelda „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Grunaður árásarmaður skotinn til bana í Berlín Fer enn huldu höfði Áhrifavaldur drepin eftir hún minntist á ásakanir í garð eiginmannsins Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Lýsa eftir þekktum öfgamanni Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Sjá meira