Sport

Rasískur bolur fyrir kapp­akstur Trump tekinn úr um­ferð

Kjartan Kjartansson skrifar
Bolurinn sem Indycar setti í sölu með slagorðinu „One nation, one race“ sem getur bæði þýtt „Ein þjóð, ein keppni“ og „Ein þjóð, einn kynþáttur“.
Bolurinn sem Indycar setti í sölu með slagorðinu „One nation, one race“ sem getur bæði þýtt „Ein þjóð, ein keppni“ og „Ein þjóð, einn kynþáttur“. Skjáskot

Bolur sem var seldur í tengslum við fyrirhugaðan kappakstur á götum Washington-borgar í sumar var kippt úr umferð vegna óheppilegs slagorðs sem var letrað á hann. Slagorðið mátti hæglega skilja sem rasískt.

Mörgum aðdáendum bandarísku Indycar-kappakstursmótaraðarinnar varð hvumsa við þegar hún setti í sölu stuttermabol tengdan Washington-kappakstrinum sem á að fara fram í ágúst í vikunni. 

Á honum mátti sjá mynd af ökuþór taka sæti styttu Abrahams Lincoln í minnisvarðanum um hann sem er eitt helsta kennileiti borgarinnar. Þar stóð einnig á ensku „One nation, one race“ eða „ein þjóð, ein keppni“ á íslensku. Vandinn skapaðist hins vegar þar sem enska orðið getur bæði þýtt „keppni“ og „kynþáttur“.

Miklar umræður sköpuðust um bolinn og slagorðið sem hefði fallið vel í kramið hjá hvítkufluðum Kú Klúx Klan-liðum. Margir furðuðu sig á því að mótaröðin hefði samþykkt hönnunina og sett hana í sölu. Bolurinn væri í besta falli taktlaus og í versta falli rasískur.

Tekinn úr sölu vegna viðbragðanna

Indycar skellti fljótlega í bakkgír og tók bolinn úr sölu. Talsmaður mótaraðarinnar segir fjölmiðlinum Indystar í Indianapolis að það hafi verið gert eftir viðbrögð viðskiptavina.

„Við skiljum að sumum einstaklingum hafi fundist orðalagið áhyggjuefni og við höfum því bætt úr stöðunni,“ sagði talsmaðurinn sem vildi ekki fara út í þá sálma hvernig hönnunin slapp í gegnum nálaraugað.

Bandarískir ráðherrar og borgarstjóri Washington-borgar kynntu fyrirhugaða kappaksturinn fyrir framan þinghúsið í mars.Vísir/EPA

Kappaksturinn sjálfur á að fara fram helgina 21.-23. ágúst. Hann var skipulagður með afar skömmum fyrirvara eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti um hann í janúar. Keppnin á að vera hluti af hátíðarhöldum vegna 250 ára afmælis Bandaríkjanna.

Fyrirhuguð brautin eftir götum borgarinnar liggur meðal annars fram hjá Smithsonian-safninu, listasafni Bandaríkjanna og niður Pennsylvaníustræti sem Hvíta húsið stendur við.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×