Handbolti

Ís­lenskir leik­menn að skila sigrum í Meistara­deildinni

Andri Broddason skrifar
Reynir Þór Stefánsson skoraði mikilvægt mark fyrir Melsungen
Reynir Þór Stefánsson skoraði mikilvægt mark fyrir Melsungen Melsungen

Íslendingaliðin Melsungen og Barcelona unnu bæði í kvöld í Meistaradeild Evrópu karla í handbolta. Melsungen vann nauman sigur á franska liðinu HBC Nantes 28-23 og Barcelona vann örugglega gegn Dinamo Bucuresti frá Rúmeníu 34-27.

Barcelona var með yfirhöndina strax í byrjun leiks en gestirnir frá Rúmeníu voru ekki langt undan þegar fyrri hálfleikur kláraðist. Þrjú mörk voru milli liðanna en Barcelona var yfir 16-13.

Strax í byrjun seinni hálfleiks fékk Victor Iturizza rautt spjald í vörn Bucuresti sem hafði mikil áhrif á vörn liðsins. Janus Daði Smárason skoraði strax í kjölfarið fyrir Barcelona og náði liðið að byggja enn stærri forystu.

Að lokum vann Barcelona sjö marka sigur, 34-27, og er liðið enn taplaust í E-riðli Meistaradeildarinnar. Janus Daði skoraði þrjú mörk fyrir Barcelona en Dika Mem var markahæsti leikmaður liðsins með sex mörk.

Mikilvægt mark Reynis hleypti liðinu á siglingu

Í Þýskalandi tók Melsungen á móti Nantes þar sem fyrri hálfleikurinn var jafn. Liðin skiptust á að skora en þegar leið á fyrri hálfleikinn byrjuðu mistök frá gestunum að sýna sig og var Melsungen með þriggja marka forystu í hálfleik, 14-11.

Franska liðið var fljótt að jafna metin í seinni hálfleik og virtist leikurinn þróast í jafnan leik þar sem úrslitin myndu ráðast í lokin. Í stöðunni 21-21 tók Melsungen leikhlé og byggði upp sókn sem endaði á því að Reynir Þór Stefánsson skoraði og kom heimamönnum yfir.

Það mark var byrjunin á því að Melsungen skoraði sex mörk í röð og náði að byggja upp vænt forskot rétt undir lok leiks. Frakkarnir náðu ekki að minnka það og endaði leikurinn með 28-23 sigri Melsungen.

Reynir Þór og félagar eru í fínum málum í Meistaradeildinni þar sem liðið er búið að vinna tvo leiki af fyrstu þremur sem liðið hefur spilað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×