Þekkir ekkert annað en pressu Valur Páll Eiríksson skrifar 8. október 2026 12:02 Baldur Þór segir enga aukna pressu fylgja titilspám Álftaness. Pressa fylgi þjálfurum hvert sem þeir fara. Vísir / Anton Brink „Það er náttúrulega alltaf spenna fyrir því að byrja og ég hefði alveg verið til í að byrja fyrr,“ segir Baldur Þór Ragnarsson sem mun stýra liði Álftaness í fyrsta sinn í Bónus deild karla í körfubolta í kvöld. Álftnesingum er spáð góðum árangri og slíkum spám fylgir pressa.
Langri bið körfuboltaunnenda lýkur í kvöld er Bónus-deild karla fer af stað með fjórum leikjum. „Undirbúningur hefur gengið vel og mér finnst við vera á fínum stað,“ segir Baldur. Höttur heimsækir Álftanesið í kvöld og heimamenn eru klárir í slaginn. Álftanes er efst í flestum spám fyrir komandi tímabil og því spáð deildarmeistaratitlinum. Mikið hefur verið lagt í sölurnar í sumar og fjölmargir öflugir leikmenn bæst við liðið auk þjálfarans Baldurs sem þekkir það vel að fagna Íslandsmeistaratitlum. Aðspurður um það hvort spárnar hafi áhrif segir Baldur: „Spá er náttúrulega bara spá. Þegar ég var að þjálfa í fyrra þá man ég ekki einu sinni hvar mér var spáð eða mínu liði var spáð. Þetta er stemning og mikið í umræðunni þegar það móment er í gangi. En svo er þetta náttúrulega bara staðfesting á því að það hafa fleiri trú á því að við séum að gera góða hluti heldur en bara við sjálfir.“ En það fylgir því líka aukin pressa? „Alltaf pressa. Ég bara man ekki eftir því að hafa ekki verið pressa. Þegar ég tek við ungur Þorlákshöfn, þá er engin trú á þér. Annað hvort nærðu árangri eða þú ert búinn í þessum bransa og svo ferðu á Krókinn í súperpressu og annaðhvort gerist eitthvað eða þú ert búinn á því,“ segir Baldur sem hóf feril sinn sem þjálfari Þórs í Þorlákshöfn og tók því næst við Tindastóli á Sauðárkróki. Þaðan fór hann til Þýskalands og svo til Stjörnunnar. „Svo kemurðu með heim úr Þýskalandi í súperlið í Stjörnunni og það er pressa og núna ertu með gott lið á Álftanesi og það er pressa. Þetta er bara ekkert nýtt fyrir mér. Það er bara pressa ef þú ert þjálfari, að ná árangri og það er bara partur af starfinu. Hvar sem þú ert,“ segir Baldur. Rennir blint í sjóinn Iðulega eru gerðar töluverðar breytingar á körfuboltaliðum landsins milli tímabila. Inn koma erlendir leikmenn sem hafa ekki sýnt sig áður hér á landi og erfitt getur verið að rýna í hin og þessi lið. Aðspurður um hvort menn renni blint í sjóinn í fyrstu leikjum tímabilsins segir Baldur. „Já, fyrstu umferðirnar eru alltaf öðruvísi og svo líður á tímabilið og það kemur einhver meiri stöðugleiki í þetta. Það er náttúrulega bara þannig að fyrstu umferðirnar eru alltaf mjög opnar og fara í allar áttir. Allir leikmenn eru einhvern veginn með óskrifað blað og mjög spenntir fyrir að sýna sig og sanna. Þannig að fyrstu umferðirnar eru mjög óútreiknanlegar,“ segir Baldur. Stemning á Álftanesi Baldur býst þá við töluverðri stemningu á Álftanesi í kvöld þar sem eftirvæntingin er mikil fyrir nýju og spennandi liði. „Það er bara hörkuspenna og samfélagið vill vinna fleiri körfuboltaleiki. Við ætlum að gera okkar besta til þess að gera það og á endanum er þetta náttúrulega bara frá degi til dags að leggja á þig og reyna að ná í sigra. Þannig að það er bara mikil spenna í samfélaginu og maður finnur það að það er mikill meðbyr hérna á þessu svæði með körfuboltanum og það er bara gaman að taka þátt í því,“ segir Baldur. Leikur Álftaness og Hattar hefst klukkan 19:15 í kvöld og er einn fjögurra leikja í deildinni sem fara fram á þeim tíma. Allir leikirnir eru í beinni á rásum Sýnar Sport Ísland og þá má fylgjast með þeim öllum samtímis á Skiptiborðinu á Sýn Sport Ísland.
UMF Álftanes Bónus-deild karla Körfubolti Mest lesið Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik Handbolti Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Fótbolti Áföllin halda áfram að dynja á Russell Formúla 1 Fleiri fréttir Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-79| Montrétturinn er í Njarðvík Komust í þriggja stafa tölu gegn nýliðunum Leikmaður ársins missir af landsleikjum Voru gripnir í bólinu í fyrsta leikhluta og unnu það ekki upp Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Meisturunum spáð miðjumoði: „Skil ekki hvernig þeir náðu honum aftur“ Dagskráin í dag: Tveir leikir og málin tækluð í Körfuboltakvöldi Æfði með rúgbíliði í Frakklandi á undirbúningstímabilinu Uppgjörið: Grindavík - Haukar 81-71| Grindavík sterkari á lokasprettinum KR vann erkifjendurna sannfærandi Sóttu fyrsta sigur tímabilsins á heimavelli Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Sjá meira