Innlent

Loka­tölur í Borgar­byggð og Skorra­dals­hreppi: Meiri­hlutinn fallinn

Ritstjórn skrifar
Á kjörskrá í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps eru 3.141 maður.
Á kjörskrá í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps eru 3.141 maður. Vísir

Sjálfstæðisflokkurinn er stærstur í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Meirihluti Framsóknarflokksins er fallinn.

Á kjörskrá í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps eru 3.141 maður. 

Alls voru greidd 2.146 atkvæði og kjörsókn því 68,3 prósent. Níu fulltrúar eiga sæti í sveitarstjórninni en samþykkt var í íbúakosningum á þessu kjörtímabili að sameina sveitarfélögin Borgarbyggð og Skorradalshrepps.

Í sveitarstjórnarkosningunum 2022 náði Framsóknarflokkurinn hreinum meirihluta í Borgarbyggð.

Allir þeir fjórir flokkar sem voru í framboði til sveitarstjórnar Borgarbyggðar og Skorradalshrepps fengu fulltrúa inn:

  • A listi - Borgarbyggðarlistinn - 2 fulltrúar (23,5%)
  • B listi - Framsóknarflokkurinn - 2 fulltrúar (25,4%)
  • D listi - Sjálfstæðisflokkurinn - 3 fulltrúar (29,3%)
  • M listi - Miðflokkurinn - 2 fulltrúar (21,9%)

Hér má sjá nýjustu tölur:

Fyrir A-listann hljóta sæti Jovana Pavlovic og  Hermann B. Valsson. 

Fyrir B-listann hljóta sæti Davíð Sigurðsson og Sonja Lind Eyglóardóttir.

Fyrir D-listann hljóta sæti þau Sigurður Guðmundsson, Ragnhildur Eva Jónsdóttir og Kristján Ágúst Magnússon.

Fyrir M-listann hljóta sæti Haukur Þór Hauksson og Þórður Brynjarsson.

Stefán Broddi Guðjónsson hefur gegnt embætti sveitarstjóra á kjörtímabilinu en í sveitarfélaginu er meðal annars að finna Borgarnes, Hvanneyri, Reykholt, Bifröst, Varmaland og Kleppjárnsreyki.


Tengdar fréttir

Nýjustu tölur í Reykja­vík

Á kjörskrá í Reykjavík eru 108.545 manns. Tuttugu og þrír borgarfulltrúar eiga sæti í borgarstjórn.

Nýjustu tölur í Kópavogi

Á kjörskrá í Kópavogi eru 30.949 manns. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Nýjustu tölur á Akur­eyri

Á kjörskrá á Akureyri eru 15.547 manns. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Nýjustu tölur í Reykja­nes­bæ

Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig tveimur mönnum og Samfylkingin tapar einum í Reykjanesbæ. Framsóknarmenn halda sínum þremur en Viðreisn fær engan mann kjörinn.

Nýjustu tölur í Ár­borg

Á kjörskrá í Sveitarfélaginu Árborg eru 9.567 manns. Ellefu bæjarfulltrúar eiga sæti í bæjarstjórn.

Nýjustu tölur á Akra­nesi

Meirihluti Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingar á Akranesi hélt velli en missti en fækkaði þó í liðinu um einn. Þetta varð ljóst eftir að yfirkjörstjórn birti lokatölur sínar á öðrum tímanum í nótt.

Nýjustu tölur í Múlaþingi

Meirihlutinn heldur í Múlaþingi og Sjálfstæðisflokkurinn bætir við sig manni á kostnað Austurlistans.

Nýjustu tölur í Vest­manna­eyjum

Sjálfstæðisflokkurinn hlaut fimm kjörna fulltrúa og þar með hreinan meirihluta í Vestmannaeyjum. Miðflokkurinn fékk tvo menn kjörna og Eyjalistinn hélt sínum tveimur.

Nýjustu tölur í Skagafirði

Byggðalistinn bætti við sig fulltrúa í sveitarstjórn Skagafjarðar en meirihluti Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks heldur velli. Þessir síðarnefndu skiptast þó á einum fulltrúa.

Nýjustu tölur í Ísa­fjarðar­bæ

Framsóknarmenn fara úr tveimur fulltrúum í fjóra í Ísafjarðarbæ og Sjálfstæðismenn halda sínum tveimur. Fráfarandi meirihluti sem gustaði um er fallinn.

Nýjustu tölur í Norðurþingi

Framsókn tapar fulltrúa í sveitarstjórn Norðurþings og því er 5 manna meirihluti Framsóknar og Sjálfstæðisflokksins fallinn. 

Nýjustu tölur í Ölfusi

Sjálfstæðismenn unnu mikinn kosningasigur í Ölfusi í sveitarstjórnarkosningunum í dag. Sjálfstæðismenn bættu við sig manni og eru nú með fimm fulltrúa í sjö manna sveitarstjórn.

Nýjustu tölur í Sveitarfélaginu Hornafirði

Framsókn og stuðningsmenn bætir við sig manni frá síðustu kosningum og Sjálfstæðisflokkurinn og K-listi Kex framboðs tapa manni hvor í sveitarfélaginu Hornafirði. Miðflokkurinn fær einn mann.

Nýjustu tölur í Rangárþingi ytra

Á-listinn tryggði sér áframhaldandi meirihluta í sveitarstjórn Rangárþings ytra í sveitarstjórnarkosningunum í dag.

Nýjustu tölur úr Rangárþingi eystra

Sjálfstæðisflokkurinn vann sigur í sveitarstjórnarkosningunum í Rangárþingi eystra í dag. Flokkurinn náði þar hreinum meirihluta – fjóra fulltrúa – en Framsókn náði tveimur og N-listinn einum.

Nýjustu tölur í Suður­nesja­bæ

Listi Samfylkingar og óháðra fær þrjá bæjarfulltrúa í Suðurnesjabæ og listi Framsókn tvo samkvæmt lokatölum í sveitarstjórnarkosningum. Sjálfstæðisflokkurinn og Miðflokkur fá tvo fulltrúa hvor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×