Viðskipti innlent

Ætla að draga enn úr fram­boði Icelandair í haust

Kjartan Kjartansson skrifar
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, boðar frekari samdrátt í flugframboði félagsins vegna hækkandi eldsneytisverðs.
Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, boðar frekari samdrátt í flugframboði félagsins vegna hækkandi eldsneytisverðs. Vísir/Lýður Valberg

Stefnt er að því að Icelandair dragi úr framboði sínu á flugferðum um fimm prósent í haust til þess að bregðast við snörpum verðhækkunum á eldsneyti. Flugfélagið hefur þegar dregið úr framboði, hækkað fargjöld og kostnaðaraðhaldi vegna hækkananna.

Verð á þotueldsneyti hefur rokið upp vegna hernaðaraðgerða Bandaríkjamanna og Ísraela í Íran og viðbragða klerkastjórnarinnar við þeim. Óvissa ríkir enn um hvort framhald verði á átökunum þar.

Icelandair hefur þegar brugðist við hækkun eldsneytisverðs með því að draga saman seglin á ýmsan hátt. Dregið var úr flugframboði um tvö prósent á öðrum ársfjórðungi auk þess sem fargjöld voru hækkuð og skorið var niður í rekstrinum.

Í tilkynningu til kauphallar í dag er haft eftir Boga Nils Bogasyni, forstjóra Icelandair, að félagið vinni nú að því að draga enn frekar úr framboði um fimm prósent um það bil í haust. 

Þá sé frekari aðlögun á flugáætlun til skoðunar, þar á meðal að flýta mögulega útfösun á Boeing 757-vélum sem séu ekki eins sparneytnar og nýrri tegundir. Icelandair hefur undanfarið unnið að því að skipta yfir í evrópskar Airbus-farþegaþotur.

Icelandair tapaði 5,6 milljörðum króna eftir skatta á fyrsta ársfjórðungi. Félagið skoðar nú kaup á starfsemi Play á Möltu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×