Íþróttaborgin Reykjavík Bjarni Guðjónsson skrifar 5. maí 2026 08:00 Uppvaxtarár mín á Akranesi snerust um fátt annað en íþróttir. Aðstaðan var líka frábær á mælikvarða þess tíma. Grasvöllurinn á Merkurtúni, Jaðarsbakkar, nýlegt íþróttahús, golfvöllur, sundlaugin og auðvitað Langisandur ef annað brást. Árangur Skagamanna í íþróttum var líka eftirtektarverður. Flestir muna eftir gullaldarliðinu í knattspyrnu, en Akurnesingar áttu líka sundfólk, golfara og aðra íþróttamenn í fremstu röð. En það sem upp úr stóð var samheldnin og stemmningin. Allir gátu stundað sína íþrótt, hvort sem ætlunin var að komast í atvinnumennsku, fá útrás og hreyfingu eða bara til að vera í skemmtilegum félagsskap. Akranes var dæmi um það hvernig íþróttir geta sameinað samfélög og stuðlað að aukinni lýðheilsu. Þar er getustig algert aukaatriði. Allir eiga að geta æft kjósi þeir svo, og þar skiptir aðstaðan höfuðmáli. Í heimsklassa Það eru kannski ekki allir sem vita það, en í Reykjavík er íþróttastarf í heimsklassa. Sérstaklega fyrir yngri börnin. Þetta þekkja foreldrar sem flutt hafa út í heim með viljuga krakka eða unglinga. Óvíða er unnið jafn gott starf og hér hvað varðar tíðni æfinga eða gæði þjálfunar. Í Skandinavíiu er til að mynda algengt að foreldrar sjái um þjálfun barna sinna. Það þekkist varla hér á landi. Reykvísk íþróttafélög hafa unnið kraftaverk að þessu leyti, og það oft á tíðum þrátt fyrir aðstöðuna en ekki vegna hennar. Til að gæta sanngirni er þó ekki einungis við Reykjavíkurborg að sakast í þeim efnum, en uppbygging íþróttaaðstöðu telst ekki til lögbundinna verkefna sveitarfélaga. Ríkari samstöðu og skýrari ramma þarf um uppbyggingu og viðhald íþróttamannvirkja, og þar þarf að kalla bæði ríki og einkaaðila að borðinu. Sjálfstæðismenn vilja að strax verði ráðist í að kortleggja aðstöðumál íþróttafélaga og að fjárframlögum til þeirra verði forgangsraðað þannig að jafnræði sé tryggt milli hverfa. Sömuleiðis verður að ýta við ríkinu, og komast úr þeirr kyrrstöðu sem ríkt hefur um þjóðarleikvang og þjóðarhöll. Mikilvægast af öllu er þó að tryggja viðunandi aðstöðu fyrir alla í hverfisfélögunum okkar. Aðstaðan er grunnurinn Skoða þarf heildstætt hvar þörfin er mest. Tryggja verður að aðstaða til íþróttaiðkunar sé fyrsta flokks í öllum hverfum borgarinnar, og forgangsraða þarf verkefnum í þeim hverfum þar sem þörfin er brýnust. Ekki má heldur einblína einungis á boltaíþróttirnar, einnig þarf að huga að öðrum. Aðstaða fyrir fimleika í Árbæ og í Breiðholti þarf að rísa, og sama gildir um íþróttahús í Laugardal. Finna þarf framtíðaraðstöðu fyrir skotfimi, uppfæra skautahöllina í Laugardal, hlúa að stangveiðifólki og sjósporti og svo mætti áfram telja. Skoða á fýsileika þess að gera golfvöll í Viðey. Í íþróttaborginni Reykjavík á fólk að geta stundað sína íþrótt við bestu mögulegu aðstæður. Þar skiptir viljinn mun meiru en getan. Íþróttir hafa gefið mér mikið í lífinu. Ég brenn fyrir því að Reykvíkingar í nútíð og framtíð geti alist upp við þær aðstæður að hreyfing og íþróttiðkun sé sjálfsagður hlutur, og standi öllum til boða fyrirhafnar- og hindrunarlaust. Til þess þarf aðstaðan að vera fyrsta flokks. Íþróttafélögin okkar þurfa aðstöðu sem hæfir því frábæra starfi sem þar er unnið. Forgangsröðum verkefnum rétt, köllum ríki og einkaaðila að borðinu, og okkur fær ekkert stöðvað. Höfundur skipar 2. sæti á framboðslista Sjálfstæðismanna í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Reykjavík Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Bjarni Guðjónsson Mest lesið Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun “Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB", sagði engin þjóð aldrei. Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar Skoðun B verður 8 – umbætur eða umbúðaskipti? Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Ég hélt að friðurinn væri kominn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Við megum ekki gefa eftir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar Skoðun Sameinumst undir regnboganum: Jafnrétti, inngilding og stolt Clara Ganslandt skrifar Skoðun Mikilvægasta Gleðigangan Hanna Katrín Friðriksson skrifar Skoðun Sjöunda þversögn gervigreindar Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Myndum borga fyrir inngöngu Svartfjallalands Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun The First Yes Is the Crucial Vote Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Sameiginlegur þekkingargrunnur að glatast? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Barátta intersex fólks standi styrkum fótum Daníel E. Arnarsson skrifar Skoðun JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar Skoðun Hverju myndi evran skila? - svar til Ásdísar Kristjánsdóttur Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Eigi veldur sá er varar Sigurgeir B. Kristgeirsson skrifar Skoðun Hvað ef ...? Brynjar M. Ólafsson skrifar Skoðun Hlógu þeir líka að Sviss, Ólafur Ragnar? Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Námsmat og einkunnir: Áskoranir og viðhorf Erna Ingibjörg Pálsdóttir skrifar Skoðun Af sannleiksást og vinnuréttindum Vilborg Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Öndum í poka! Ísland verður í lagi Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Íslensk, sænsk eða engin króna Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna blaktir palestínski fáninn í Gleðigöngunni? Elí Hörpu- og Önundarbur,Bashar Murad skrifar
Skoðun Blásum til sóknar í menntun með bættum námsgögnum Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir skrifar
Skoðun Bæjarstjórnarmyrkrið: Þegar einokunarleyfishafinn gat ekki kveikt ljósið Arnar Sigurðsson skrifar
Skoðun Hvað ætlar þú að gera við tímann sem gervigreindin gefur þér? Þórdís Jóna Ingigerðardóttir skrifar