Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar 28. september 2026 11:31 Í sumar runnu upp þau tímamót fyrir okkur hjá Beljanda brugghúsi í Breiðdalsvík að við þurftum ekki að senda bjórinn okkar fyrst fram og til baka til Reykjavíkur áður en hægt var að selja hann í næsta firði hér fyrir haustan. Vegir hins opinbera eru stundum órannsakanlegir. Þannig voru þeir að minnsta kosti árum saman fyrir okkur hjá Beljanda á meðan Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins (ÁTVR) sá um sölu áfengra drykkja á Fáskrúðsfirði. Þar til í sumar þurfti bjórinn okkar nefnilega að undirgangast hringferð suður, á annað þúsund kílómetra, áður en hægt að var að raða honum í hillur í Fáskrúðsfirði sem er í fimmtiu kílómetra fjarlægð frá brugghúsinu. Ástæðan fyrir þessu furðulega verklagi ÁTVR er krafan um að vörum sé dreift frá miðlægum lager í Reykjavík. Ofan á þennan flutningsóskapnað bætist svo hin klassíska hindrun ríkisverslunarinnar sem flest sjálfstæð brugghús og innflytjendur áfengis þekkja af eigin raun: hversu erfitt og flókið getur verið að fá vörurnar yfirleitt skráðar og samþykktar inn í hillur ríksins. Hið órannsakanlega er: Af hverju þetta þarf að vera svona? En þessi flutningsfarsi breyttist sem sagt þegar ÁTVR ákvað að loka verslun sinni á Fáskrúðsfirði. Í staðinn kom afhendingarverslun Santé. Nú getum við loksins komið bjórnum okkar á framfæri með umhverfisvænni, ferskari og eðlilegri hætti. Og auðvitað hefur enginn kvartað yfir því að bjórinn sleppi við suðurferðina. Gildandi áfengislöggjöf gerir skýran greinarmun á því að selja og að afhenda, og sá greinarmunur hefur reynst okkur smáframleiðendum og austfirskum bjórunnendum óvænt notadrjúgur. Þessi greinarmunur hefur líka verið okkur íbúum hér fyrir austan lykilatriði við að halda uppi þjónustustigi þar sem hið opinera ákvað að láta sig hverfa. Það eru ákveðin lífsgæði fyrir íbúa Fáskrúðsfjarðar og nágrenni að geta haldið áfram að ná sér í bjór eða aðra áfengi drykki í bænum. ÁTVR ætlaði að ákveða fyrir okkar hönd að við þyrftum að aka til Reyðarfjarðar í þeim erindagjörðum en hið góða er að hið opinbera er ekki almáttugt. Í síðustu vikuðu töppuðum við á dósir nýrri lögun af „Heiðu“, ljósum lagerbjór hér hjá okkur í Beljanda brugghúsi í Breiðdalsvík. Skömmu síðar var bjórinn kominn í afhendingarverslunina á Fáskrúðsfirði, þar sem fyrir var Pale Ale-bjórinn okkar, Dýrhundstindur. Fyrir skömmu hefði þessi stutti tími milli bruggunar og hillu hljómað eins og óhugsandi munaður. En bjórinn slapp við suðurferðina og þannig á það að vera. Höfundur er framkvæmdastjóri Beljanda Brugghúss. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar