Þurfum við nýtt kerfi í stað jafnlaunavottunar? Diljá Mist Einarsdóttir skrifar 4. maí 2026 08:30 Frumvarp dómsmálaráðherra um að afnema núverandi kerfi um séríslenska jafnlaunavottun og -staðfestingu fyrirtækja og stofnana var til umræðu og afgreiðslu á Alþingi liðinni viku. Kerfið var lögfest árið 2017 sem fyrsta (og eina) þingmál Viðreisnar í þáverandi ríkisstjórn, en þykir nú fullreynt að hafi ekki reynst vel. Svo ekki sé kveðið fastar að orði. Það má því hrósa ráðherranum fyrir að stíga þetta skref, en ég styð afnámið heilshugar. Ég hef enda barist fyrir afnámi jafnlaunvottunar árum saman á þingi og lagt fram fjölmörg þingmál því til stuðnings. Stöðugt hefur dregið úr kynbundnum launamun á undanförnum árum og áratugum. Samkvæmt launarannsóknum mælist hins vegar ekki marktækur munur á kynbundnum launamun hjá aðilum sem hafa innleitt jafnlaunavottunarkerfi og hinum sem hafa ekki gert það. Skyldubundin skýrslugjöf Með frumvarpi ráðherra er komið til móts við háværar athugasemdir við kerfið. Í stað þess leggur ráðherra hins vegar til skyldubundna skýrslugjöf um kynbundinn launamun. Forsendurnar eru þær að núverandi jafnlaunavottunarkerfi hafi „átt þátt í viðhorfsbreytingu á vinnumarkaði með því að festa í sessi framkvæmd jafnlaunareglunnar um sömu laun fyrir sömu og jafn verðmæt störf sem hefur verið til staðar í íslenskum rétti allt frá 1976.“ Ekki er vikið að því að rannsóknir gefi til kynna að þrátt fyrir kostnaðarsama framkvæmd hafi stjórnendur jafnframt haft litla trú á tilætluðum árangri jafnlaunavottunar, eðli málsins samkvæmt. Meirihlutinn hafnar breytingartillögu Ég lagði fram breytingartillögu við frumvarp ráðherra um að nýtt kerfi um skýrslugjöf um kynbundinn launamun yrði með öllu valkvætt fyrir fyrirtæki og stofnanir hér á landi. Þrátt fyrir að nýja kerfið sé léttara í vöfum og minna íþyngjandi en núverandi kerfi, bentu umsagnaraðilar til þingsins á það að ferlið yrði áfram kostnaðarsamt og tímafrekt. Skýrslugjöfin fæli þannig áfram í sér íþyngjandi kvaðir, án þess að fyrir lægi skýr ávinningur eða notagildi. Þá bentu umsagnaraðilar á að vísað væri til launagagnsæistilskipunar ESB í greinargerð með málinu, en hún hefði ekki verið innleidd hér á landi. Þá væri jafnframt gengið lengra í frumvarpinu varðandi viðmið um starfsmannafjölda en gert væri í tilskipuninni og því væri um eiginlega „gullhúðun að ræða“. Meirihlutinn hafnaði hins vegar breytingartillögunni. Reynsla og rannsóknir á núverandi kerfi jafnlaunavottunar og -staðfestingar hafa bent til þess að jafnlaunavottun hafi reynst dýr og íþyngjandi kvöð fyrir fyrirtæki og stofnanir og að í besta falli leiki vafi á um að nokkur árangur hafi verið af henni. Þótt hugsast megi að nýtt jafnlaunakerfi veki stjórnendur og aðra til umhugsunar um jafnrétti á launamarkaði, er næsta víst að þeim áhrifum hefði mátt ná fram með því að kerfið væri lögfest en valkvætt verkfæri. Höfundur er þingmaður Sjálfstæðisflokksins Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Diljá Mist Einarsdóttir Alþingi Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar