Hollywood-liðið missir af umspili og Ipswich í ensku úrvalsdeildina Valur Páll Eiríksson skrifar 2. maí 2026 13:33 Stuðningsmenn Ipswich við Portman Road glöddust mjög eftir að úrvalsdeildarsætið var tryggt. Paul Harding/Getty Images Lokaumferð Championship-deildarinnar á Englandi fór fram í hádeginu í dag. Þar var barist um öruggt sæti í ensku úrvalsdeildinni sem og umspilssæti.
Ipswich Town, Millwall og Middlesbrough áttu öll möguleika á því að landa öðru sæti deildarinnar og þar með sæti á meðal bestu liða Englands á næstu leiktíð fyrir umferð dagsins. Coventry City hafði þegar tryggt sér titilinn og sæti í ensku úrvalsdeildinni fyrir leiki dagsins. Ipswich stóð best að vígi og ljóst að sigur gegn QPR myndi duga. Millwall þurfti að vinna sinn leik við fallið Oxford United og treysta á misstig. Middlesbrough þurfti að vinna sinn leik við Wrexham og treysta á misstig beggja hinna tveggja. Coventry tók við bikarnum sem sigurvegari B-deildarinnar síðustu helgi.Dan Mullan/Getty Images Skemmst er frá því að segja að Ipswich vann öruggan 3-0 sigur á QPR og fer því aftur í ensku úrvalsdeildina eftir aðeins eins árs stopp í B-deildinni. Millwall endar í þriðja sæti eftir 2-0 sigur á Oxford. Middlesbrough mætti hins vegar Wrexham sem háði harða baráttu við Hull City um sjötta sæti deildarinnar, neðsta sætið sem gefur keppnisrétt í umspilinu um að fylgja Ipswich og Coventry upp. Bæði Wrexham og Middlesbrough höfðu skorað tvö mörk fyrir hlé á Racecourse-vellinum í Wales og staðan 2-2 eftir hléið. Oli McBurnie skoraði sitt annað mark fyrir Hull til að koma Tígrunum 2-1 yfir í sínum leik við Norwich á 67 mínútu og þá var staðan þannig að Hull færi upp. Ljóst var að Wrexham þyrfti mark til að komast í umspilið. Þeir velsku sóttu hart að Middlesbrough á lokakaflanum en komu ekki inn marki. Leiknum lauk 2-2 og Hollywood-liðið þarf því að horfa á eftir umspilssætinu í hendur Hull City. Millwall mun mæta Hull heima og heiman í umspilinu og Southampton tekst á við Middlesbrough. Líkt og áður segir fara Coventry og Ipswich beint upp í ensku úrvalsdeildina. Oxford United, Leicester City og Sheffield Wednesday fara niður í C-deildina.
Enski boltinn Ipswich Town FC Mest lesið „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Íslenski boltinn „Á meðan er hann að sofa hjá Ólympíufara í sundi“ Sport Sjáðu slagsmálin í Síkinu Körfubolti Uppgjörið: Grindavík-Njarðvík 104-103 | Pargo með sigurkörfuna Körfubolti Fái að fresta prófum til að spila fyrir Íslands hönd Handbolti Uppgjörið: Valur-Ármann 87-84 | Misstu næstum því sigurinn frá sér Körfubolti Missti af leik með KR vegna herskyldu Körfubolti „Ég hefði frekar kýlt hana í andlitið“ Körfubolti Emil Atlason á leið í Fram Íslenski boltinn „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Arteta harður við Dowman: „Þetta er ekki Disneyland“ Aston Villa í mál við Jamie Carragher Iraola: Því fleiri leiki sem við vinnum, því betri verðum við Hópurinn vilji hafa Carrick áfram Grealish í agabanni hjá Everton Áfrýjun Arsenal á rauða spjaldi Dowman hafnað „Enski boltinn er annar heimur“ „Ég þarf ekki fullvissu frá neinum“ „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Verða án Sesko fram í janúar „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Máttu ekki spyrja Haaland út í dóminn og hættu við viðtalið Sonur Wayne Rooney með fernu fyrir átján ára liðið „Ég vissi að Gomez myndi skora“ Liverpool slapp við Manchester City Liverpool áfram eftir vítakeppni Rulli hetja Manchester City í vítakeppninni Sverðin slíðruð og líklegt að Fernandes byrji gegn Chelsea Lygileg tölfræði Andra toppar Haaland og Kane „Tek líklega ekki skrefið til Barcelona frá Blackburn“ Sjóðheitur Orri sagður í sigti Everton Sjáðu Fleetwood slá út Arsenal og Dowman sjá rautt Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sendi Haaland og fleiri í frí Framherjarnir þurfi að stíga upp Æðið vindur upp á sig og Gudjohnsen-merking ókeypis Stuðningsmennirnir fögnuðu Carrick en bauluðu á leikmennina Hver gæti tekið við af Carrick? Sjá meira